Winamp Logo
Tæknivarpið Cover
Tæknivarpið Profile

Tæknivarpið

Icelandic, Technology, 8 seasons, 128 episodes, 6 days, 17 hours, 21 minutes
About
Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.
Episode Artwork

WWDC 2024 - Apple uppgvötar gervigreind

WWDC 2024 - uppskera hugbúnaðarþróunar Apple er nýlega afstaðin og Andri, Atli og Gulli gera hana upp.
6/18/20241 hour, 31 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

Hvernig er hægt að nýta sér spunagreind?

Tæknivarpið fékk góða gesti til að ræða hagnýtingu gervigreindar - eða þá nánar tiltekið spunagreindar. Gunnar Reykjalín frá Origo og Binna Borgar frá Datalab. Stjórnandi er Atli Stefán. Þessi þáttur er í boði Origo 🙏
6/7/202445 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

Microsoft sækir á MacBook Air og á gervigreind

Microsoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir.
6/1/20241 hour, 12 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

Nýjar iPad spjaldtölvur og 121x AI

Atli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO. 
5/17/20241 hour, 22 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi

Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður  Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið  Íslensk tónlist hent útaf TikTok
4/10/20241 hour, 10 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

MacBook Air M3 og DMA tekur gildi

Andri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar.
3/13/20241 hour, 4 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

Apple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWC

Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC.
3/2/20241 hour, 13 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

Apple Vision Pro komið til Íslands

Atli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣
2/22/20241 hour, 18 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Þáttur ársins 2023

Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins?  Það og svo miklu meira í þætti ársins.
1/15/20242 hours, 29 minutes, 1 second
Episode Artwork

Það þarf enginn tíu gígabita á sekúndu

Við fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu?? Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
12/15/202352 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

Nothing hakkar Apple og gervigreindarnæla

Nothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út.
11/15/20231 hour, 10 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

Hryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskrift

Apple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir mikinn skaða. Meta býður nú upp á áskriftir fyrir Facebook og Instagram - greiddu €15 á mánuði og slepptu auglýsingum. Ætlar þú að kaupa?
11/10/20231 hour, 7 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Framtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólgleraugu

Atli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir.
10/21/202342 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

Pixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOS

Vivaldi er loksins kominn út á  iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur.
10/6/20231 hour, 1 minute, 16 seconds
Episode Artwork

Heitir iPhone-símar og kaldir Android-símar

Það eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
9/27/20231 hour, 55 seconds
Episode Artwork

iPhone nú í títaníun og umhverfisvænari Apple

Atli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2.  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni.
9/14/20231 hour, 37 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

iPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskil

Andri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi: iPhone 15 með USB-C Apple Watch S9 Apple Watch Ultra 2 Apple Airpods Pro 2 með USB-C  Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
9/6/20231 hour, 8 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Míla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnu

Atli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni: 10 gígabitar til heimila hjá Mílu Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum Playstation Portal er flopp? Sony PS+ hækkar í verði Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu.  Þessi þáttur er í boði Tech Support. 
9/3/20231 hour, 11 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

Tæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjum

Atli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði. Þessi þáttur er í boði TechSupport.is
8/19/202350 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

Threads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáir

Atli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
7/19/202359 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

WWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærð

Við rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️ Stjórnendur eru Atli og Gulli.
6/8/20231 hour, 35 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

WWDC upphitun og fleira.

Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér.   Umræðupunktar (e. Show notes) Inngangur Rafhjólahornið Tenways rafmagnshjól IPTV umræðan Sýn stefnir Jóni Einari Ad-tech og friðhelgi einkalífs Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum Starfsmenn Ring virtu friðhelgi einkalífs notenda að vettugi Meta kynnir Quest 3 Verð - $499 Neytendahornið Gulli prófaði Gripið og Greitt Tesla hornið. WWDC upphitun Nýjar Mac tölvur væntanlegar. Apple Reality Pro concept Lokaorð   Kostendur: Nuki á Íslandi: Nuki Opener hjálpar þér að snjallvæða dyrasímann, sem gagnast öllum sem vilja hleypa fjölskyldumeðlimum og öðrum getum inn um útidyrahurðina hvar og hvenær sem er. Hlustendur Tæknivarpsins fá 10% afslátt af Nuki Opener og/eða Nuki Smart Lock Pro með því að slá inn kóðann taeknivarpid. TechSupport fyrir að lána okkur upptökustað.   Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason, Gunnlaugur Reynir Sverrisson og Sverrir Björgvinsson.
6/2/20231 hour, 10 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Microsoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhone

Skýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max.  Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
5/24/20231 hour
Episode Artwork

Google I/O og Bónus: Gripið og Greitt

- ATT.is og Game Stöðin loka verslunum sínum.  - Bónus kynnir EKKi gripið og greitt.  - Wolt hefur starfsemi á Íslandi.  - Google I/O er rætt, sem fór fram í síðustu viku. - Twitter kynnir nýjan forstjóra Umjsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi), Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
5/16/20231 hour, 13 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Staða bókarinnar með Margréti Tryggvadóttur

Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, mætti í Tæknivarpið og ræddi stöðu bókarinnar í breyttu landslagi. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
5/15/202350 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

Guðfaðir gervigreindar hættir í fússi og hlutafjáraukning Ljósleiðarans

Gunnlaugur, Atli Stefán og Mosi ræða fréttir vikunnar: Hlutafjáraukning Ljósleiðarans Blackberry leikin kvikmynd Guðfaðir gervigreindar hættir hjá Google í fússi  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem lánar okkur upptökustað 💜    
5/5/20231 hour, 3 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

Apple Reality, WWDC og NAS pælingar

Atli Stefán Yngvason og Sverrir Björgvinsson komu saman og ræddu Apple Reality höfuðtólið sem verður líklega kynnt í sumar, helstu orðróma varðandi WWDC ráðstefnu Apple sem verður 5.-9. júní.
4/28/20231 hour, 7 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

Páskavarp Tæknivarpsins

Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika.  Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum.    Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
4/12/20230
Episode Artwork

Hopp og Hopon á leigubílamarkað

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banki. Ný löggjöf um leigubílaþjónustu tók gildi fyrsta apríl. Hopp stofnaði leigubílaþjónustu, og nýtt fyrirtæki, Hopon ætlar líka að vera með til að Uber-væða íslenskt samfélag Svo er snert á því hvaða matvörubúð á Íslandi sé best og hvers vegna. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi) og Elmar Torfason.
4/3/20231 hour, 4 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

ChatGPT talar íslensku, útrunnin rafræn skilríki og TikTok bann

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við förum yfir fréttir síðustu þriggja vikna útaf sottlu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Sverrisson (leikari).
3/23/20231 hour, 9 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Playstation VR2 og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við fáum til okkar góðan gest, hann Daníel Rósinkranz, og ræðum Playstation VR2 sýndarveruleikahjálminn og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra.  Stjórendur eru Atli Stefán og Kristján Thors.  
3/18/202357 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Starlink-netið óstöðugt og Musk rekur (ekki?) mann ársins

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka.  Starlink hefur verið prófað af netnördum Íslands og Sensa í rigningu, roki og logni. Sensa tók sitt próf saman í grein. Elon Musk, smaragðarnámuerfingi, rak eða rak ekki mann ársins í fyrra: Harald Þorleifsson. Svokölluð Schrödinger-uppsögn. Við rekjum upp einn áhugaverðasta Twitter-storm ársins í þættinum. MWC snjalltækja-ráðstefnan var haldin í febrúar og við fjöllum ný spennandi tæki sem voru sýnd þar. Microsoft er að opna á Game Pass fyrir XBox og Windows-tölvur. iOS 16,4 er á leiðinni og er með djúsí fídusa. Twitter setur tveggja þátta auðkenningu bakvið gjaldvegg, en það er víst bara SMS-leiðin ekki öppin.  Stjórnendur eru Andri Valur og Atli Stefán.
3/9/20231 hour, 6 minutes
Episode Artwork

indó app-þróun og framtíðin

Við fengum góðan gest í þátt vikunnar frá indó: Þór Adam Rúnarsson forritara hjá indó, "ekki bankanum". indó er nýr sparisjóður á Íslandi sem býður upp á veltukort með debit-korti + Apple Pay + Google Pay.  Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur.
3/1/202355 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

Nýtt frá Sonos lekur (aftur) og Starlink opnar á Ísland

Starlink opnar á Íslandi, íslenskir netþrjótar ryðja sér til rúms, Sonos hátalarar leka (aftur), Meta býður upp á áskriftir til að tryggja öryggi persónulegs auðkennis og Bing gervigreindin Sydney er dóni. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
2/27/202357 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

Google Bard, Samsung Unpacked og 4000 slög á Twitter

UTmessan nýafstaðin, Origo stofnar menntunarsjóð fyrir starfsfólk, BagDrop.is tekur töskurnar fyrir þig upp á flugvöll, Samsung kynnir nýja síma og tölvur, Google Bard gervigreindin kynnt, Twitter vinnur 4000 slagna tístum og Nintendo Switch verður þriðja mest selda leikjatölvan. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir
2/9/20231 hour, 11 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Bálkakeðjutölvuleikir, Gametíví og Formúla 1 með Kristjáni Einari

Kristján Einar Kristjánsson var gestur okkar þetta skiptið og sagði okkur frá Civitas sem er nýr íslenskur tölvuleikur í vinnslu sem er byggður á bálkakeðju. Ásamt því ræddum við  um Gametíví og tækni sem var þróuð í Formúlu 1 sem við nýtum í hversdaglegum græjum. Stjórnendur þáttarins eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.  
2/3/20231 hour, 8 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Ómönnuð sjóför, Netflix vangaveltur og greiðsluhættir í Kenía

Íslenska fyrirtækið Hefring smíðar tæknilausnir fyrir ómönnuð sjóför. Microsoft bilun hafði áhrif á hundruðir milljóna notenda. Discord er væntanlegt á PlayStation. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Bjarni Ben og Sverrir Björgvinsson.
1/26/20231 hour, 15 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

Er Apple verri kaup fyrir borgina?

Indó komið í Apple pay, Borgarfulltrú Flokks Fólksins ósáttur við kaup á rándýrum apple tölvum og alskonar nýjar Apple græjur. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur: Bjarni Ben, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir  
1/22/20231 hour, 46 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

CES2023: Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og Sony bíll

Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
1/11/20231 hour, 46 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

Þáttur ársins og Tækniverðlaun 2022

Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni.   Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.
1/8/20232 hours, 38 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Fleiri App Store verslanir á iOS og græjujólin 2022

Tæknivarpið fer ofan í saumana á máli Nova sem úthlutaði óvart símanúmeri sem var í notkun til til annars viðskiptavinar. Einnig er farið yfir helstu mál síðustu vikna, Spotify wrapped, Domino's wrapped, Xiaomi 13 símann og möguleikann á fleiri App Store verslunum í iOS heimi. Síðast en ekki síst, þá ræða stjórnendur þáttarins bestu jólagjafir ársins í heimi tækninnar. Stjórnendur eru Atli Stefán Yngvason, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
12/17/20221 hour, 13 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Rafræn skilríki og eSim, sterkara Gorilla Glass og niðurgreiðslur rafbíla

Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurningar af Twitter og ræðum eSim og rafræn skilríki.    Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir
11/30/20221 hour, 11 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir

Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp.  Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila.   Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidburdir/gagnaoryggi    Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
11/19/20221 hour, 12 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio

Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio og Meta eru í þróunarsamstarfi og sýndi Hilmar okkur nýja Quest Pro höfuðtólið. Hilmar er líka fyrsti maðurinn sem við höfum hitt sem fallbeygir Meta.   Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Vöggur Guðmundsson.
11/11/202256 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Ísland slugsar í netöryggi

Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa verð á áskrift með auglýsingum en ekki fyrir Íslendinga. Samsung Odyssey Ark fær hræðilega dóma og er mjög dýr. Musk er búinn að reka hálft Twitter og auglýsendur virðast vera flýja.    Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
11/5/202253 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad

Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð.  Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben,  Gunnlaugur Reynir,  Kristján Thors og Valtýr Bjarki.
10/29/20221 hour, 16 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl

Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan færðarvef, en Gulli vill bara hringja í þau. Nova sendi okkur tæknimann (Aron Heiðar Steinsson) eftir vandræðalegt spjall okkar um Voice of Wifi eða þráðlaus símtöl, sem fræddi okkur um VoLTE, VoWiFi og 5G.    Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Þessi þáttur er einnig í boði Origo, sem er að halda opinn fyrirlestur um netöryggi í skýjalausnum þann 26. október. Skráið ykkur inn á https://www.origo.is/vidburdir/netoryggi-vidburdarod-origo2   Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
10/20/20221 hour, 12 minutes, 1 second
Episode Artwork

iPhone 14 Plus umfjallanir og nýjar vörur frá Microsoft

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn mætti hafa enska boltann í stórum heildarpakka. iPhone 14 Plus umfjallanir eru komnar út. Microsoft var með ágætis viðburð og margt fleira. Umsjónarmenn þáttarins er Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð .
10/13/20221 hour, 28 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Google leggur Stadia á hilluna og gott Tempo hjá Origo

Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson
10/9/20221 hour, 6 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Kindle með penna, Höddi Mac kveður og Pixel lekar

Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (tenging við sjónvarpsþáttinn?) og Kindle Scribe sem er lesbók með e-Ink skjá sem styður penna (Remarkable). DallE er nú opið öllum og sumir segja að vondu róbotarnir munu stela vinnu af fólki. Logitech bjó til vélrænt lyklaborð fyrir Mac sem er mjög retro. Atli fékk loksins Airpods 3 heyrnatólin sín í hendurnar, sem voru 5-6 vikur úti í íslensku sumari og þau VIRKA.   Þessi þáttur er í boði Macland.is sem selur Apple tæki og KFC sem selur BOSS BACON sem Elmar elskar.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
9/29/20221 hour, 23 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Bann á Google Analytics og GTA6 myndbrotum lekið

Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dómar fyrir Apple þrennuna eru komnir út og þeir eru ekkert sérstakir. Apple kynnti ekki stærstu breytinguna á iPhone 14 á nýafstöðnum viðburði sínum: allt innvolsið hefur verið tekið í gegn og nú er mun auðveldara að gera við hann. En þetta á einungis við iPhone 14 (ekki Pro símana). Victrola gefur út plötuspilara sem getur streymt beint í Sonos-hljóðkerfi. Windows Explorer fær loksins flipa, 9 árum á eftir macOS og enn fleiri árum á eftir Ubuntu. Nvidia kynnti ný og dýr skjákort í vikunni: RTX 4090 og 4080. Logitech ætlar að koma með áhaldanlega skýjaleikjatölvu sem heitir því frábæra nafni G Cloud Gaming Handheld sem kemur í sölu þann 17. október.   Við fengum góðar spurningar af Twitter, meðal annars frá @icemandave2 og @kariarnar sem við svöruðum í þættinum.    Þessi þáttur er í boði Macland.is sem er að dæla út nýjum Apple þrennum, KFC sem býður upp á BOSS BACON máltíð og Origo sem býður upp á fyrirlestur í netöryggi þann 28. september næstkomandi sem er opinn öllum. Sjá fyrirlestur hér: https://www.facebook.com/events/840082753827663
9/23/20221 hour, 21 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

Mintum rafkrónur í betaprófun, VoWiFi hjá Nova og bestu sjónvarpskaupin

Börkur Jónsson, einn af stofnendum Rafmyntasjóðs Íslands og http://mintum.is, mætti í heimsókn og sagði frá nýjung á sviði rafmynta á Íslandi. Í fréttum vikunnar var farið yfir nýjungar frá Sonos, símtöl yfir þráðlaust net hjá Nova og að lokum var spurningum hlustenda svarað. Þátturinn er í boði Macland sem kemur með iPhone 14 og iPhone 14 Pro í forsölu 16. september. Þátturinn er einnig í boði KFC sem býður upp á B.O.S.S. Bacon máltið á aðeins 0,00072 Bitcoin eða 2.099 rafkrónur (ISKT). Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben og Marinó Fannar.
9/13/20221 hour, 41 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Apple Watch Ultra, iPhone 14 plus og ný Airpods Pro

Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods.    Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu.   Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
9/10/20221 hour, 42 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

iPhone vinsælli en Android í Bandaríkjunum

iPhone er markaðsleiðandi í Bandaríkjunum. Gulli prófaði Skannað og Skundað. Twitter leyfir ritskoðun á tístum gegn gjaldi. Svo eru fastir liðir eins og venjulega.   Þessi þáttur er í boði Macland.   Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason, Marinó Fannar Pálsson og Sverrir Björgvinsson.
9/4/20221 hour, 33 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

iPhone 14 er handan við hornið

Apple kynnir nýjan iPhone og annað góðgæti þann 7. september næstkomandi. Í sömu viku heldur Advania sína árlegu haustráðstefnu sína. Stjórnendur reyna svo að skera úr um það hvort hljóðskilaboð séu snilld eða ekki. Að endingu þá er #SpurðuTæknivarpið svo á sínum stað. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason.
8/28/20221 hour, 41 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Húðtóna heyrnatól frá Kardashian og Himnasendingar

Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikjaskjá sem er gersamlega sturlaður.  Þessi þáttur er í boði Macland.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Elmar Torfa.
8/18/20221 hour, 19 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

Vonbrigði í streymisheimi og ný íslensk bankaþjónusta

Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar
8/11/20221 hour, 7 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

Ljósleiðarinn flýtir uppbyggingu og skjálftar í Android

Þau sem eiga Android síma sem er vel uppfærður geta fengið jarðskjálftatilkynningar beint í símann. Stýrikerfið fær gögn úr hröðunarmælum Android síma og vinnur úr þeim tilkynningu sem giskar á stað og Richter-stuðul. Heiðar Guðjónsson hefur verið keyptur út úr Sýn en er þetta hluti af stærri fléttu? Ljósleiðarinn flýtir fyrir uppbyggingu sinni í samstarfi við Nova. Macbook Air M2 býður afhroðs á YouTube og fær slæm viðbrögð vegna ofhitnunar og aðeins hægari geymsluplássi. En eiga viðbrögð rétt á sér? Pixel 6a fór í sölu og fær glimrandi dóma þrátt fyrir eldgamla linsu. Nothing Phone (1) fór í forsölu og fékk ekkert svo góða dóma. En hann er öðruvísi í heimi leiðinlegra síma. Talandi um aðra skemmtilega síma: það er loksins kominn smár Android sími sem er ekki með drasl innvolsi! Asus Zenfone 9. Atli er búinn að prófa Sony XM5 og Linkbuds, og er mjög hrifinn.  Þessi þáttur er í boði Macland 🍏 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson
8/5/20221 hour, 14 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

317 Gervigreind með sál og Landspítala app

Við erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur alla vega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn að þróa app Myndlyklar enn þá fáranlega vinsælir Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara Encroapp "hakk" frönsku löggunar nælir í íslenska bófa Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild)  Google gervigreind öðlast sál, samkvæmt dulrænum presti sem starfar hjá Google Ford innkallar bíla en er byrjað að afhenda F150 Lightning Microsoft jarðar Internet Explorer eftir 26 ár  Microsoft heldur feita tölvuleikjakynningu Atli prófar Sony XM5 heyrnatólin  Þessi þáttur er í boði Macland 🍏 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Marinó Fannar Pálsson.  
6/16/20221 hour, 16 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

316 “Ekki svört” Macbook Air og ný stýrikerfi

Apple hélt lykilræðu á WWDC tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og “ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring.    Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple tæki og aukahluti. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
6/9/20221 hour, 32 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

315 WWDC orðrómar og Nova útboð

Það er óvenjumikið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til BNA til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti,  Sýn vill ekki eiga innviði enn vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá einstaklinga sem nota sitt eigið lén til einkanota, Google Drive fær (loksins) afritunarflýtileiðir, OneNote fær yfirhalningu á næstunni, Ikea býr til Matter hub og app, lítið bassabox frá Sonos á leiðinni á viðráðanlegu verði, Microsoft styrkir sig í ARM-málum og gamalt sjónvarp slær út nettengingar heils þorps í Wales.    WWDC er svo í næstu viku og við fá Sigurð Stefán Flygenring í heimsókn til að kemba í gegnum orðróma um tæki og hugbúnað frá Apple.   Þessi þáttur er í boði Macland.  Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur. Atli þurfti að bregða frá í lokin en Sigurður og Andri sáu um að klára orðrómana.
6/2/20221 hour, 20 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

314 iPod lagður til grafar og fullt af tækjum frá Google

Nýjasti þátturinn af “Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter” heldur áfram að fjalla um hvort Elon Musk sé búinn að kaupa Twitter. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur.   Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
5/15/20221 hour, 1 minute, 53 seconds
Episode Artwork

312 Snap býr til dróna og Pixel snjallúr fannst á víðavangi

ESB ætlar að gera það sem er ólöglegt í raunheimum einnig ólöglegt á netinu. Ríkið býður út tvo ljósleiðaraþræði í Nato-strengnum. Elon Musk klárar að fjármagna kaup á Twitter og mun að öllum líkindum eignast fyrirtækið innan skamms. Twitter oftaldi notendur í þrjú ár, en fattaði það sjálft og leiðrétti á uppgjörsfundi. Snap býr til drónamyndavél með tveimur linsum. Apple átti frábæran fjórðung og Mac-vörulínunni gengur mjög vel. ESB vill að Apple opni aðgang að NFC eiginleikum iPhone svo aðrar greiðslumiðlanir komist að. Apple Studio Display fær uppfærslu fyrir vefmyndavélina en er hún betri? Activision Blizzard yfirtakan hefur verið samþykkt af hluthöfum. Pixel snjallúr fannst á bar og það er mjög stutt í afhjúpum. Sony WH1000x fær víst mjög stóra útlitsuppfærslu samkvæmt lekum. Oneplus Nord N20 5G fær þokkalega dóma og er fínn 5G sími.    Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
4/28/20221 hour, 6 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

311 Áskrifendum Netflix fækkar í fyrsta sinn

Nýtt íslenskt bílatryggingarfélag lítur dagsins ljós: Verna. Félagið ætlar að nýta sér snjalltæki til að lækka ábyrgðir. Sjálftitlaði Technoking Teslu og stórfjárfestirinn Elon Musk er að reyna kaupa Twitter, en á hann peninga fyrir því? Steam Deck dokkan er ekki einu sinni komin út en það er búið að uppfæra hana. Playdate leikjatölvan er komin út og það rigna inn umfjallanir. Verður þetta fimmtándi vettvangurinn sem Gulli kaupir sér GTA5? Magsafe rafhlaðan fær uppfærslu og hleður nú hraðar! Homepod hátalarar hækka í verði eftir að framleiðslu var hætt. Netflix áskrifendur fækkar í sinn og það er komin ólga á streymiveitumarkaðinn. CNN+ streymiveitan lögð niður eftir einungis mánuð í loftinu.   Þessi þáttur er í boði Macland.   Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson
4/23/20221 hour, 27 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

310 Hleðslukvíði burt með Buzz og Twitter íhugar edit takka

AtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á Edit takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá síðasti kom út árið 2011. Netflix bætir við nýjum flokki eftir hugmynd Pete Davidson: short ass movies. Flokkurinn er með kvikmyndir undir 90 mínútum til að heilla yngri kynslóðir 💀 Atli fer svo aftur yfir næstu kaup, sem hafa ekki enn átt sér stað.   Þessi þáttur er í boði Macland.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Mosi.
4/7/20221 hour, 4 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

309 Auðkenni þjóðnýtt og lofthreinsigríma frá Dyson

Við erum með sneysafullan þátt af tæknifréttum og kaupákvörðunum Atla. Auðkenni hefur verið keypt af Ríkinu. Fyrirtæki býr til gervitónlistarfólk inn á Spotify til að græða peninga. Klapp lausnin frá Strætó er í tómu tjóni, eða hvað? Atli fjallar einnig um Studio Display sem hann skoðaði í verslun Macland Kringlunni.  Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
4/3/20221 hour, 42 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

302 Spotify í klandri vegna Joe Rogan

Íslenskir menntasprotar vekja athygli vestanhafs, en íslensku fyrirtækin Beedle og Mussila eru komin í hóp 200 efnilegustu sprota í menntatækni í heiminum. Spotify er í klandri vegna viðtals Joe Rogan við vísindamann sem gagnrýnir mRNA bóluefni. Alda Music var selt til Universal Music, sem þýðir að margar íslenskar tónlistarperlur eru nú í eigu erlendra aðila. Intel kynnir Alder Lake örgjörva sem hefur stundum betur en M1 Max örgjörvi Apple, en með smá fyrirvara. Svo keypti Gulli sér svo síma á Bland. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur þáttarins í dag eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
2/3/20221 hour, 22 minutes, 18 seconds