Winamp Logo
Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur Cover
Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur Profile

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Icelandic, Arts, 1 season, 62 episodes, 20 hours, 41 minutes
About
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Episode Artwork

Ástrós Rut Sigurðardóttir

Ástrós var rétt rúmlega tvítug þegar hún tókst á við það verkefni að fylgja manni sínum í gegnum erfið veikindi. Þau ákváðu að lifa lífinu lifandi meðan þau gætu og gera allt sem þeim langaði til. Milli þess barðist hann fyrir lífi sínu en á endanum sigraði krabbameinið og fyrir þremur árum lést Bjarki Már, aðeins 32 ára gamall. Þá stóð Ástrós uppi ein með tæplega eins árs barn og hafði enga hugmynd um hvernig hún ætti að halda áfram. Hún tók ákvörðun um að leyfa sér að vera hamingjusöm og skapa sér fjölskyldulífið sem hún þráði.
7/20/20220

7/20/202239 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

Guðmundur Ingi Þóroddson

Guðmundur Ingi hefur setið um 16 ár af ævi sinni í fangelsi og þekkir fangelsismál út og inn. Hann er formaður Afstöðu - félags fanga sem barist hefur fyrir bættum úrræðum í fangelsum landsins. Hann telur fangelsiskerfið hér á landi vera langt á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum og margt sé hægt að gera til þess að koma í veg fyrir frekar glæpi fanga og endurkomur í fangelsin.
7/19/20220

7/19/202240 minutes
Episode Artwork

Hulda Vilhjálmsdóttir

Hulda Vilhjálmsdóttir myndlistarkona ræðir listina og lífið.
7/18/20220
Episode Artwork

Hulda Vilhjálmsdóttir

Hulda Vilhjálmsdóttir myndlistarkona ræðir listina og lífið.
7/18/202240 minutes
Episode Artwork

Sigríður Lund Vídó Hermannsdóttir

Útvarpskonan Sigga Lund var frá barnæsku afar trúuð og taldi sig vanta æðri tilgang í lífið. Hún gifti sig 18 ára en skildi nokkrum árum síðar og endaði í biblíuskóla í Bandaríkjunum. Það var örlagarík ferð sem endaði með að hún var í sértrúarsöfnuði næstu árin þar sem hún réði litlu sem engu um líf sitt en treysti á leiðsögn leiðtoga safnaðarins.
7/14/20220

7/14/202240 minutes
Episode Artwork

Svavar Georgsson

Svavar Georgsson var ungur þegar hann leiddist út á ranga braut. Hann var heimilislaus í mörg ár og bjó meðal annars í tjaldi í rjóðri í Breiðholti í tvö ár. Fyrir tæpum þremur árum sneri hann lífi sínu við til þess að geta verið til staðar fyrir börnin sín og einbeitir sér í dag að því að reyna verða betri maður og láta gott af sér leiða til samfélagsins. Við heyrum sögu Svavars í dag.
7/13/20220

7/13/202240 minutes
Episode Artwork

Stefanía Thors

Stefanía Thors varð óvart kvikmyndaklippari en klippir í dag kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Hún lærði leiklist í Tékklandi og bjó þar í þrettán ár og vann sem leikkona á daginn og aðstoðarklippari á kvöldin til þess að eiga í sig og á.
7/12/20220

7/12/202240 minutes
Episode Artwork

Heiða B. Heiðarsdóttir

Árið 1964 birtist í Morgunblaðinu auglýsing þar sem auglýst var eftir ungum hjónum til að taka að sér kjörbarn. Þeir sem höfðu áhuga voru beðnir um að senda bréf merk Kjörbarn - 9203. Þetta barn var Heiða B. Heiðarsdóttir sem eignaðist yndilega foreldra. Hún leitaði hins vegar lengi að blóðföður sínum og komst ekki að sannleikanum um hann fyrr en hún var komin á sextugsaldur. Við heyrum sögu Heiðu í þættinum í dag.
7/11/20220

7/11/202239 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Árni H. Kristjánsson

Árni H. Kristjánsson hefur undanfarin ár rannsakað svokallaðar vöggustofur sem reknar voru á Íslandi fyrir um hálfri öld. Þar dvöldu ungbörn við afar sérstakar aðstæður sem hafa líklega haft langtímaáhrif á mörg þeirra. Árni hefur ásamt öðrum vöggustofubörnum barist fyrir því að rekstur þeirra verði rannsakaður og að börnin fá réttlæti Árni dvaldi sjálfur á slíkri vöggustofu og segir það hafa mótað allt sitt líf.
7/7/20220

7/7/202240 minutes
Episode Artwork

Birgitta Haukdal

Þegar Birgitta var 15 ára gömul sá hún auglýsingu í blaði þar sem auglýst var eftir stjörnum morgundagsins. Hún var barnfóstra hjá frænku sinni og fór með börnin á Broadway til þess að fylgjast með prufunni en þó í öruggri fjarlægð því hún þorði ekki að taka þátt. Gunnar Þórðarson sá hana þó í leynum og fékk hana til að taka lagið og segja má að þar hafi fræjum að söngferli hennar verið sáð. Birgitta ræðir um æskuna á Húsavík, fjörið og stritið á ferlinum og allt þar á milli.
7/6/20220

7/6/202240 minutes
Episode Artwork

Böðvar Sturluson

Böðvar Sturluson flutningabílstjóri þekkir lífið á veginum betur en flestir. Hann var varla farinn að tala þegar hann var orðinn svo heillaður af vörubílum að ekkert annað komst að. Hann reyndi að fara aðrar leiðir í lífinu en þessi óbilandi áhugi á vélum og vörubílum hafði betur. Undanfarin àr hefur hann glímt við nýrnabilun á lokastigi sem gerði það að verkum að hann var bundinn við nýrnavél hálfan sólarhringinn. Í byrjun síðasta árs öðlaðist hann nýtt líf þegar hann fékk nýtt nýra.
7/5/20220

7/5/202241 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

Sigríður Gísladóttir

Sigríður ólst upp hjá móður sem var glímdi við mikil geðræn veikindi. Ung taldi hún það vera á sinni ábyrgð að sjá um móður sína og passa upp á hana. Hún upplifði sinnuleysi kerfisins og hét því að hjálpa börnum í sömu stöðu þegar hún gæti. Það hefur hún gert með því að stofna úrræðið Okkar heimur þar sem börn fólks með geðrænan vanda fá aðstoð.
7/4/20220

7/4/202240 minutes
Episode Artwork

Tinna Björk Kristinsdóttir

Tinna Björk Kristinsdóttir hefur vakið athygli í hlaðvörpunum Þarf alltaf að vera grín? og Mistería. Hún hefur vitað frá unga aldri að hún bæri stökkbreytt gen sem veldur arfgengri heilablæðingu en þetta gen finnst bara í nokkrum fjölskyldum á Ísland og veldur yfirleitt heilablæðingum hjá ungu fólki. Móðir hennar ber líka genið en hvorugar hafa fengið heilablæðingu. Hún segir mikilvægt að skilgreina sig ekki sem sjúkling og vill frekar vera álitin fyndin. Genið hefur þó breytt sýn hennar á lífið, hún velur vel hvað hún gerir og nýtur augnabliksins.
2/15/20210

2/15/202140 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Svala Jóhannesar- Ragnheiðardóttir

Gestur þáttarins er Svala Jóhannesar- Ragnheiðardóttir sem hefur starfað með heimilislausum í þrettán ár. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
2/11/20210

2/11/202142 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

Lára Ómarsdóttir

Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
2/10/20210
Episode Artwork

Lára Ómarsdóttir

Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
2/10/202140 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

Eva Ruza Miljevic

Blómasalinn og skemmtikrafturinn Eva Ruza hefur vakið athygli undanfarin ár á samfélagsmiðlum Hún segir frá lífi sínu í blómabúðinni þar sem hún og móðir hennar eru stundum hálfgerðir sálfræðingar. Hún segir líka frá stóra draumnum um að birta í dálknum Hverjir voru hvar í Séð og heyrt og ævintýralegt ferðalag föður síns frá Króatíu þar sem hann ólst upp auk þess sem hún talar um lífið í skemmtanabransanum svo eitthvað sé nefnt. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
2/9/20210

2/9/202140 minutes
Episode Artwork

Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir

Gestur þáttarins er Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir sem ræðir um einamanleika, samskipti og útskúfun sem hún varð fyrir í æsku. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

2/9/202139 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

Eliza Reid

Gestur þáttarins er Eliza Reid forsetafrú. Umsjón hefur Viktoría Hermannsdóttir.
12/3/20200

12/3/202039 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

Ásta Dís Guðjónsdóttir

Gestur þáttarins er Ásta Dís Guðjónsdóttir sem starfar fyrir PEP, samtök fólks í fátækt. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
12/2/20200

12/2/202039 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Sigþrúður Guðmundsdóttir

Gestur þáttarins er Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

12/2/202040 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Hannes Halldórsson

Það lá aldrei beinast við að fótbolti yrði að ferli hjá Hannesi Þór Halldórssyni eftir að hann slasaðist illa á snjóbretti þegar hann var 14 ára. Hann segir frá því hvernig hann vann sig upp innan tveggja sviða - fótbolta og kvikmyndagerðar, til þess að þurfa ekki að veðja á annað hvort. Langir vinnudagar hafa skilað honum farsælum ferli á báðum sviðum - þó að það sé ekki endilega alltaf auðvelt að sinna bæði.
8/6/20200

8/6/202040 minutes
Episode Artwork

Erla Hlynsdóttir

Erla Hlynsdóttir er eini Íslendingurinn sem hefur unnið mál gegn íslenska ríkinu þrisvar sinnum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hún ræðir erfitt samband sitt við föður sinn sem fyrirfór sér fyrir um þremur árum síðan en áður hafði hann hrellt og ofsótt Erlu án þess að hún gæti nokkuð gert.
8/5/20200

8/5/202040 minutes
Episode Artwork

Steinþór Hróar Steinþórsson

Steindi Jr. ætlaði sér alltaf að verða leikstjóri og stefnir þangað enn. Hann fékk vini sína til að leika sér með í stuttmyndum en endaði sjálfur fyrir framan myndavélina þegar allir höfðu gefist upp á endalausum myndatökum hans. Fyrir örfáum árum íhugaði hann að sækja um í leiklistarskólanum til þess að sækja sér "alvöru" menntun en stóra tækifærið kom þegar hann fékk hlutverk í myndinni Undir trénu sem hann hlaut Edduverðlaun fyrir. Hann er metnaðarfullur þegar kemur að störfum sínum, stundum svo mikið að hann efast stöðugt um frammistöðu sína. Hann rifjar upp skemmtileg atvik úr æsku og lífið í Mosfellsbænum.
8/4/20200

8/4/202040 minutes
Episode Artwork

Jasmina Vajzovic Crnac

Fyrstu æskuár Jasminu eru sveipuð áhyggjuleysi en allt breyttist þegar stríðið braust út í heimalandi hennar, Bosníu Hersegovinu. Í fjögur ár voru fjölskylda hennar flóttamenn í eigin landi sem lifðu við stöðugan ótta í ömurlegum aðstæðum.
7/30/20200

7/30/202040 minutes
Episode Artwork

Jóhann Gunnar Arnarsson

Hinn sídansandi Jóhann Gunnar starfaði sem bryti á Bessastöðum lengi. Hann hefur alltaf verið óhræddur við að fara eigin leiðir og á eflaust með litríkustu fataskápum landsins.
7/29/20200

7/29/202040 minutes
Episode Artwork

Jónína Einarsdóttir

Jónína Einarsdóttir hefur lifað ævintýralegu lífi en hún og eiginmaður hennar hafa starfað og búið í Gíneu - Bissá. Hún segir frá rannsóknum sínum sem snúa meðal annars að sorg mæðra sem missa börn sín og sveitadvölum - en rannsóknir hennar teygja sig yfirleitt bæði til Íslands og Gíneu - Bissá enda segir hún flest vera sammannlegt.
7/28/20200

7/28/202040 minutes
Episode Artwork

Helga Braga Jónsdóttir

Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir ætlaði sér að verða dramaleikkona en endaði í gríninu. Hún ræðir lífið, ferilinn, kaupæðið, matarfíknina og hvernig hún tók á því þegar það féllu á hana skuldir sem hún var í ábyrgð fyrir.
7/23/20200

7/23/202040 minutes
Episode Artwork

Tómas Þór Þórðarson

Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór var við það að gefast upp á því að hann myndi einhvern tímann grenna sig þegar hann fékk neitun um að fara í magaermisaðgerð vegna þess að hann var of þungur. Hann ræðir hvernig líf hans gjörbreyttist í kjölfarið en á nokkrum árum hefur hann misst 125 kíló og öðlast nýtt líf.
7/22/20200

7/22/202040 minutes
Episode Artwork

Eyrún Eyþórsdóttir

Lögreglukonan Eyrún Eyþórsdóttir mátti þola ofsóknir eftir að hafa stýrt verkefni gegn hatursáróðri hjá lögreglunni. Hún ræðir lögreglustarfið og sögur Íslendinga sem settust að í Brasilíu og eiga hug hennar allan.
7/21/20200

7/21/202040 minutes
Episode Artwork

Brynja Nordquist

Brynja Nordquist var um árabil ein þekktasta fyrirsæta landsins auk þess sem hún var flugfreyja í háloftunum í tugi ára. Hún ræðir litríkt lífshlaup sitt og hvernig það er að vera orðin löglegur eldri borgari sem er óhrædd við að skemmta sér og öðrum á samfélagsmiðlum.
7/16/20200

7/16/202038 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Alma Hafsteinsdóttir

Alma Hafsteinsdóttir byrjaði að spila í spilakössum 5 ára með afa sínum en hafði ekki hugmynd um að það myndi heltaka líf hennar síðar. Spilafíknin stýrði lífi hennar í mörg ár en í dag hjálpar hún öðrum í sömu stöðu með því að vekja athygli á vandanum.
7/15/20200

7/15/202041 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Sindri Sindrason

Fjölmiðlamaðurinn Sindri Sindrason talar um ferilinn, fullkomnu fjölskylduna sem hann þráði alltaf að eignast, fordómaleysið og drauminn sem rættist þegar hann eignaðist fósturdóttur.
7/14/20200

7/14/202038 minutes, 43 seconds