Winamp Logo
Listamenn Cover
Listamenn Profile

Listamenn

Icelandic, Social, 1 season, 61 episodes, 3 days, 8 hours, 34 minutes
About
Tónlistarmennirnir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn búa til sitt hvorn topp 10 listann yfir alls konar hluti, hugtök og fyrirbæri og ræða um þá sín á milli.
Episode Artwork

#60 Íslensk lög ársins

HÆ! AFSAKIÐ BIÐINA! GLEÐILEGT ÁR! NÚ ERU ÞAÐ ÍSLENSKU LÖG ÁRSINS! BARA GAMAN!
12/31/20221 hour, 8 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#59 Lög fyrir hlaupið

Örn skokkar, Valdimar gengur rösklega. Báðir eru þeir vel stemmdir því þeir eru að hlusta á hlaupalögin sín.
11/26/20221 hour, 23 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#58 Sjónvarpsþættir frá 10. áratugnum

Valdimar og Örn horfðu mikið á sjónvarp þegar þeir voru börn og táningar á 10. áratugnum og tala hér um þá sjónvarpsþætti sem þeim þóttu skemmtilegastir á þeim tíma.
11/19/20221 hour, 30 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

#57 Lyktir

Valdi og Össi eru báðir með nef sem þeir nota til að finna lykt af hinum ýmsu hlutum. Nú ræða þeir um sínar uppáhalds lyktir.
11/12/202253 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#56 Byggingar á Íslandi

Á Íslandi eru alls konar byggingar sem Valdi og Örn annað hvort fíla eða fíla ekki. Nú tala þeir um byggingarnar sem þeir fíla.
11/5/20221 hour, 13 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#55 Súpur

Hæ. Listamenn hér. Súpur. Þær eru góðar. Þær eru margar. Þær eru umræðuefni þáttarins þessa vikuna.
10/29/20221 hour, 1 minute, 4 seconds
Episode Artwork

# 54 Lög frá Prins Póló

Svavar Pétur var einstakur maður. Listamenn telja sig heppna að hafa fengið að kynnast honum. Þessi þáttur er tileinkaður honum.
10/22/20221 hour, 13 seconds
Episode Artwork

#53 Grænmeti

Valdi og Össi ræða um grænmeti. Grænmeti er voðalega hollt.
10/15/20221 hour, 12 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#52 Lög sem voru samin fyrir bíómyndir

HÆ! Listamenn tala hér um lög sem voru samin sérstaklega fyrir bíómyndir. Það er nú bara þannig.
10/8/20221 hour, 33 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

#51 Hlutir sem við gerðum í sumar

LISTAMENN ERU MÆTTIR AFTUR! Í þessum endurkomuþætti tala Valdi og Össi um allt það skemmtilega sem þeir gerðu í sumar.
10/8/20221 hour, 17 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#50 Íslenskar plötur frá 10. áratugnum

ÞÁTTUR NÚMER 50! Þeir eru mættir aftur listadrengirnir og ætla nú að ræða um íslenskar hljómplötur úr 9unni. Gjössovel.
4/30/20221 hour, 24 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

#49 Illmenni kvikmyndasögunnar

Covid, illmenni lífs okkar allra síðustu 2 ára, olli því að Listamenn þurftu að taka sér smá pásu. Er þá ekki viðeigandi að ræða um illmenni kvikmyndasögunnar? Það höldum við.
4/9/20221 hour, 29 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#48 Tónleikar sem við höfum spilað á

Valdi og Össi hafa spilað á rosalega mörgum tónleikum. Góðum og slæmum. Hvaða tónleikar ætli standi upp úr hjá þeim?
3/26/20221 hour, 42 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

#47 Úr borðinu í bakaríinu

Bakkelsi og kruðerí er svakalega gott með góðum kaffibolla. Össi og Valdi kíkja aðeins í bakaríið.
3/19/20221 hour, 4 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#46 Snjallsímaforrit

Valdimar og Örn eiga báðir snjallsíma sem þeir nota ansi mikið, þar af leiðandi nota þeir einnig ansi mikið af snjallsímaforritum. Ansi snjallir strákar.
3/12/20221 hour, 19 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

#45 Drykkir (gestalistamaður: Snæbjörn Ragnarsson)

Drykkir eru afskaplega góðir. Þeir geta verið sætir, súrir, sterkir, beiskir, bragðlausir og allt þar á milli. Sérstakur gestur er geðþekki öðlingurinn og listaunnandinn Snæbjörn Ragnarsson.
3/5/20222 hours, 15 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#44 Íslensk lög sem komust ekki í Eurovision

Þar sem undankeppnin fyrir Eurovision er handan við hornið ákváðu Listamenn að taka fyrir bestu íslensku lög sem komust ekki í keppnina stóru.
2/26/20221 hour, 17 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#43 Ofurhetjur

Valdiman og Örninn fljúgandi eru mættir til að bjarga deginum! Ofurhetjur!
2/12/20221 hour, 32 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

#42 Bland í poka

Listamenn eru nammigrísir miklir. Nú velja þeir topp 10 „nömmin” sín í bland í poka.
2/5/20221 hour, 14 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

#41 Skemmtistaðir

Fyrir þá sem ekki vita, þá hafa Valdi og Össi sko djammað. Á alls konar stöðum. Skemmtistöðum.
1/29/20221 hour, 29 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

#40 Bílalúgur

Að geta keypt sér óhollan mat án þess að þurfa að stíga út úr bílnum sínum er lúxus sem Valdi og Össi gjörsamlega elska.
1/22/20221 hour, 39 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#39 Ávextir

Gleðilegt nýtt ár! Valdimar og Örn eru loksins komnir aftur eftir jólafrí og nú er það sko nýársbomba: Ávextir!
1/15/20221 hour, 29 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#38 Jólahefðir

Valdi og Össi tala um uppáhalds jólahefðirnar sínar. Gleðileg jól kæru listaunnendur. Við sjáumst svo alveg svakalega hress á nýju ári.
12/25/20211 hour, 28 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

#37 Erlend lög sem urðu íslensk jólalög

Við Íslendingar eigum mjög marga jólahittara sem voru upprunalega bara alls ekki jólalög. Valdi og Össi skoða þau aðeins á meðan þeir reyna að jafna sig á þynnkunni eftir gleðskap gærkvöldsins.
12/18/20211 hour, 10 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#36 Borðspil

Okkar dyggasti hlustandi hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar beðið okkur um að taka fyrir borðspil. Nú getur hann hætt að spyrja.
12/11/20211 hour, 36 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#35 Kex

Össi og Valdi eru nú meiru kallarnir. Jafnvel bara alveg kexruglaðir! Kex, gjöriði svo vel!
12/4/20211 hour, 31 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#34 NBA leikmenn

Í þetta skiptið fékk Valdimar að ráða hvaða listi yrði tekinn fyrir. Líklega leiðinlegasti þáttur sem við höfum gert (samt alveg skemmtilegur sko).
11/27/20211 hour, 37 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

#33 Skrýtnir og áhugaverðir hlutir í fari hins

Við leyfðum facebook grúppunni okkar að velja listaefni þáttarins og það kom aldeilis í bakið á okkur. Takk Baldur.
11/20/20211 hour, 41 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#32 Morgunkorn

Morgunstund gefur korn í munn-d. Valdi og Össi fara á dýptina hvað morgunkorn varðar, alveg niður í botn skálarinnar.
11/13/20211 hour, 32 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#31 Spendýr

Valdimar og Örn raða hér sínum uppáhalds spendýrum á topp 10 lista. Valdimar og Örn eru fullorðnir menn. Og spendýr.
11/6/20211 hour, 21 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

#30 Íslensk lög frá 9. áratugnum

Valdi og Össi draga fram krumpugallann, setja svitaband á ennið og bíta í neðri vör. Það er áttan.
10/30/20211 hour, 16 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#29 Snakk

Össi og Valdi tala um snakk. Alls konar snakk. Snakk er gott. #takksnakk
10/23/20211 hour, 23 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#28 Bjórar sem fást í ríkinu á Fáskrúðsfirði (gestalistamaður: Þorvaldur Halldórsson)

Valdimar og Örn eru staddir á Stöðvarfirði í upptökusessjóni og fóru í ríkið á Fáskrúðsfirði og keyptu sér besta bjórinn sem var í boði þar. Trommuleikarinn Þorvaldur Halldórsson er sérstakur gestur.
10/17/20211 hour, 39 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#27 Íslensk orð

Þó orðaforðinn hjá Valdimari og Erni sé ekki ríkur þá hafa þeir nú samt gaman af góðum íslenskum orðum.
10/9/20211 hour, 12 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#26 Tölvuleikir

Jæja, nú eru það tölvuleikir. Þetta verður áhugavert.
10/2/20211 hour, 31 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

#25 Gítarsóló

Valdi og Össi elska góð gítarsóló. Það er vindur í hári og miklar munngeiflur í þessum þætti því nú taka strákarnir fyrir topp 10 gítarsóló.
9/25/20211 hour, 17 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#24 Sundlaugar Íslands

Á Íslandi eru margar ofboðslega fínar sundlaugar. Valdi og Össi reyna í þessum þætti að koma því til skila hvaða sundlaugar þeim finnst vera bestar. Mikill guslugangur í þessum þætti.
9/18/20211 hour, 34 seconds
Episode Artwork

#23 Hljómplötur 2000-2009

Nú ætla Valdi og Össi að tækla tónlistina í núllunni. Erfitt verkefni.
9/11/20211 hour, 32 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

#22 Meðlæti

Valdimar og Örn eru mættir aftur eldhressir eftir sumarfrí og í þetta skiptið ætla þeir að vera með læti og ræða um meðlæti.
9/4/20211 hour, 17 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#21 Lög í bíómyndum

Góð lög geta gert góðar bíómyndir ennþá betri. Hér eru okkar uppáhalds lög í bíómyndum.
7/17/20211 hour, 17 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#20 Kokteilar

Valdimar og Erni þykir voða gott að fá sér kokteila. Sumarfílingur og kokteilar, hvað er betra?
7/10/20211 hour, 5 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

#19 Rauðir dagar

Hver elskar ekki frí? Valdimar og Örn ræða hér um sína uppáhalds frídaga.
7/3/20211 hour, 12 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#18 Krydd

Valdimar og Örn elska krydd. Krydd er líka best. Topp 10 krydd gjöriði svo vel!
6/26/202151 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#17 Coverlög sem eru betri en orginallinn

Listamenn stunda það mikið að spila coverlög. Nú velja þeir coverútgáfur af lögum sem þeim finnst vera betri en hjá upprunalegum flytjendum lagsins.
6/19/20211 hour, 30 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#16 Skyndibitastaðir á Íslandi

Valdimar og Örn eru matgæðingar miklir. Nú taka þeir fyrir hornstein í íslenskri matarmenningu, skyndibita.
6/12/20211 hour, 30 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#15 Tónlistarfólk sem dó of ungt

Listamenn eru staddir á hótelherbergi í Neskaupstað eftir vel heppnað gigg á Beituskúrnum. Með bjór og smá viskí í glösum ræða þeir um tónlistarfólk sem dó of ungt. Þessi þáttur er svolítið dökkur, biðjumst velvirðingar á því.
6/5/20211 hour, 26 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#14 Vandræðaleg augnablik

Listamenn rifja upp sín vandræðalegustu augnablik. Mjög vandró þáttur.
5/29/20211 hour, 48 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

#13 Tónleikastaðir á Íslandi

Valdimar og Örn hafa haldið tónleika á ýmsum stöðum víðs vegar um landið. Nú ætla þeir að tala um sína uppáhalds tónleikastaði.
5/22/202153 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#12 Hlutir sem við myndum taka með okkur í neðanjarðarbyrgi

Valdimar og Örn undirbúa sig fyrir heimsendi, sem er vonandi alls ekki í nánd.
5/15/202153 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#11 Peppandi lög

Strákarnir eru í miklum gír þennan laugardaginn og tala um þau lög sem ná að peppa þá mest.
5/8/20211 hour, 2 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#10 Boðorðin 10

Í þessum þætti ræða Valdi og Össi um boðorðin 10 og eiga eflaust á endanum eftir að fara rakleiðis til helvítis.
5/1/202151 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#9 Súkkulaðistykki

Á ferðalögum sínum um landið hafa Valdimar og Örn fengið sér ansi marga kaffibolla og oftar en ekki fá þeir sér súkkulaðistykki með. Mmm, súkkulaði.
4/24/20211 hour, 6 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

#8 Heimilistæki

Þeir vita ekki hvernig þeir fóru að því, en einhvern veginn tókst Valda og Össa að tala um sín uppáhalds heimilistæki í klukkutíma og korter. Góða skemmtun!
4/17/20211 hour, 16 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#7 Bílar

Valdimar og Örn vita augljóslega ekkert um bíla en þeim finnst þeir skemmtilegir og nú ræða þeir um sína uppáhalds bíla.
4/10/20211 hour, 28 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#6 Bítlalög

Valdi og Össi elska Bítlana og í þessum þætti ræða þeir félagar um sín uppáhalds lög frá því stórkostlega bandi.
4/3/20211 hour, 4 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#5 Sósur

Sósur eru góðar. Sósur eru margar. Sósur eru í uppáhaldi hjá Valdimari og Erni og í þessum þætti ætla þeir að tala um sínar uppáhalds sósur.
3/27/20211 hour, 1 minute, 53 seconds
Episode Artwork

#4 Lönd

Valdimar og Örn ræða topp 10 löndin sem þeir hafa heimsótt og segja sögur af hinum ýmsu utanlandsferðum sem þeir hafa farið í.
3/20/20211 hour, 49 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#3 Íþróttir

Valdimar og Örn ætla í þessum þætti að ræða um sínar uppáhalds íþróttagreinar. Þess ber að geta að hvorugur þeirra er mikill sérfræðingur á því sviði.
3/13/20211 hour, 15 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

#2 Götur höfuðborgarsvæðisins

Í þætti númer 2 þræða Valdimar og Örn Stór-Reykjavíkursvæðið og leiða hvorn annan í gegnum uppáhalds göturnar sínar.
3/6/20211 hour, 10 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#1 Kvikmyndir 2010-2019

Í fyrsta þætti Listamanna ræða Valdimar og Örn um sínar uppáhalds bíómyndir frá öðrum áratug 21. aldar.
3/6/20211 hour, 32 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

#0 Listamenn kynning

Listamenn er nýtt hlaðvarp frá tónlistarmönnunum Valdimari Guðmundssyni og Erni Eldjárn í samstarfi við Hljóðkirkjuna. Frá því að Valdimar var ungur spekúlant hefur honum þótt ofboðslega gaman að búa til lista. Listarnir gátu verið af ýmsum toga, meðal annars uppáhalds plötur frá ákveðinni hljómsveit, verstu illmenni bíómyndasögunnar eða jafnvel bara bestu tómatsósutegundirnar. Örn og Valdimar hafa ferðast mikið saman um landið í gegnum tíðina og hafa þeir því eytt löngum stundum með hvor öðrum í bíl. Á þessum ferðalögum hefur Valdimari tekist að smita Örn af þessu áhugamáli sínu og varð þetta að þeirra uppáhalds leik þegar bílferðirnar urðu langar. Nú ætla þeir félagar að gera þennan leik að hlaðvarpi og fyrir hvern þátt munu þeir búa til sitt hvorn topp 10 listann yfir alls konar hluti, hugtök og fyrirbæri og ræða um þá sín á milli.
3/4/20213 minutes, 35 seconds