Winamp Logo
LAUNRÁÐ Cover
LAUNRÁÐ Profile

LAUNRÁÐ

Icelandic, History, 1 season, 10 episodes, 7 hours, 29 minutes
About
Launráð er nýtt hlaðvarp sem fjallar um dularfulla og óútskýranlega atburði, óvenjulegar frásagnir fólks og samsæriskenningar.
Episode Artwork

Barbara Jane Mackle

Barbara Mackle var tvítug þegar henni var rænt og var hún grafin lifandi í 83 klukkutíma. 
5/18/202423 minutes, 1 second
Episode Artwork

Marie "Adler"

Raðnauðgari herjaði á Lynnwood og svæðin í kring árið 2008 en þegar fórnarlambið fór til lögreglu með sína sögu þá var hún talin vera að ljúga þessu. Marie missti allt það litla sem hún átti í kringum sig og var það ekki fyrr en að sambærileg mál komu upp á öðrum stöðum sem lögreglan fór að skoða þetta nánar - þó ekki lögregludeildin í Lynnwood.  Samfélagsmiðlar:  www.instagram.com/launrad 
4/4/202441 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

Dr. John Schneeberger

Dr. John Schneeberger var mjög virtur læknir í Kanada sem átti fallega fjölskyldu og gengu hlutir vel hjá honum, mjög vel þar til að hann var ásakaður um nauðgun. Ekki var hægt að fá samsvörun á DNA sýninu hans við það sem tekið var úr fórnarlambinu og því var ákæran felld niður, en fórnarlambið hélt áfram baráttu sinni að sanna hvað Dr. John hefði gert.  Fylgdu Launráð á samfélagsmiðlum:  www.instagram.com/launrad 
3/4/202435 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

Sandy Hook skotárásin

Skotárásin í Sandy Hook skólanum átti sér stað í desember árið 2012, þegar Adam Lanza gekk inn með nokkur skotvopn og skaut alls 26 kennara og nemendur til bana. Skotárásin hefur verið mikið gagnrýnd og samsæriskenningar hafa hlaðist upp er varðar raunveruleikagildi hennar. Átti hún sér stað eða var þetta allt sviðsett til þess að rýmka byssulögjöfina?    Fylgdu Launráð á instagram:  www.instagram.com/launrad 
3/9/20231 hour, 5 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

Sjálfsvígshjálparinn

Er það löglegt að hvetja til sjálfsvígs í Bandaríkjunum? Hvað ef það er gert í gegnum netið? Fjallað er um mál Nadiu og Mark og hverjar afleiðingarnar eru af því, að hjálpa fólki við að binda enda á líf sitt, einungis með orðum.  TRIGGER WARNING - Í þættinum er fjallað um sjálfsvíg   www.instagram.com/launrad 
11/15/202233 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Bennington þríhyrningurinn

Bennington þríhyrningurinn er hugtak sem fengið var utan um svæði hjá Bennington þar sem dularfull mannshvörf hafa átt sér stað í gegnum tíðina. Það virðist sem fólk hafi einfaldlega gufað upp frá yfirborði jarðar og engin ummerki finnast sem geta varpað ljósi á það sem gerðist. Á samfélagsmiðlum: @launrad
5/18/202236 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

Gloria Ramirez

Eitt febrúarkvöld árið 1994 hringir kærasti Gloriu í neyðarlínuna og biður um sjúkrabíl þar sem kærasta hans var að þjást af mikilli ógleði og átti erfitt með andardrátt. Þegar hún mætti á spítalann, byrjaði starfsfólkið hvert á fætur öðru að veikjast skyndilega. Sumir féllu í yfirlið á meðan aðrir fengu mæði og þurftu að víkja út úr herberginu.  Það átti eftir að reynast rannsóknaraðilum erfitt að finna orsök veikinda starfsfólksins, en með tímanum fundu þeir niðurstöðu sem þeir voru sáttir við, en fjölskylda Gloriu var það hinsvegar ekki.    Fylgdu LAUNRÁÐ á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/launrad www.instagram.com/launrad
5/12/202228 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Armin Meiwes

Armin Meiwes var þýskur tölvuviðgerðarmaður. Hann hafði búið með móður sinni mest alla ævi eftir að faðir hans yfirgaf hann, sem setti ákveðið hol í hjartað hans. Hans draumur var því að snæða sér á mannakjöti, í von um að einmannaleikinn myndi batna þar sem sá aðili myndi sameinast honum. Að borða mannakjöt er ekki ólöglegt í Þýskalandi, svo hvernig dæmir maður slíkt athæfi til refsingar? 
1/26/20221 hour, 18 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Nicholas Barclay

Nicholas Barclay var 13 ára þegar hann hvarf sporlaust eftir að hafa verið að spila körfubolta með vinum sínum árið 1994. Það var ekki fyrr en þremur árum síðar, sem lögreglan í San Antonio fékk símtal um að Nicholas væri fundinn heill á húfi í litlu hverfi á Spáni. Hann hafði verið pyntaður og þvingaður í mannsal um allan heim, og fór lögreglan strax í að rannsaka það hver hefði rænt honum og flogið með hann til Evrópu. Á meðan þeirri rannsókn stóð var margt annað sem vakti athygli lögreglunnar, og vildu þeir ólmir svara þessari spurningu: "Er þetta hinn raunverulegi Nicholas Barclay?".
12/16/202147 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

Tromp fjölskyldan

Við köfum ofan í eitt undarlegasta og dularfyllsta mál Ástralíu, þegar Tromp fjölskyldan hvarf skyndilega árið 2016. Þessi fimm manna fjölskylda skildi eftir sig vegabréf, ökuskírteini, kreditkort, farsíma og allar persónulegar eigur, og hélt af stað í nokkurra kílómetra ferðalag. 
8/25/202158 minutes, 43 seconds