Winamp Logo
Gagnarök Cover
Gagnarök Profile

Gagnarök

Icelandic, Finance, 1 seasons, 31 episodes, 1 day 16 hours 23 minutes
About
Konfektmolar í veröld markaðsmála
Episode Artwork

Tæki & tól | Framer vefumsjónarkerfið sem er á allra vörum

Í þessum þætti af Gagnarök fjalla Ómar og Biggi um vefumsjónarkerfið Framer sem virðist vera á allra vörum þessa dagana og er að breyta því hvernig vefsíður eru hannaðar, smíðaðar og uppfærðar.Framer er svo kallað &quot;no-code&quot; vefumsjónarkerfi og var fyrirtækið stofnað árið 2013  og er með höfuðstöðvar í Amsterdam í Hollandi. Einn helsti styrkleiki Framer er hversu auðvelt er að hanna vefsíðu og búa hana til án þess að þurfa forritara til að smíða hana. Framer gefur markaðsfólki, vefstjórum, hönnuðum ofl. sjálfstæði og gerir því auðveldara fyrir að teikna upp draumavefsíðuna sína, framleiða hana á skömmum tíma, uppfæra hana og viðhalda henni.Í þættinum köfum við ofan í:Hvað er vefumsjónarkerfi? Hvernig er hægt að nýta Framer?Hverjir eru kostir og gallar Framer?Hver er munurinn á Framer og Wix, Webflow og Prismic.Hver eru tips &amp; tricks við að nota Framer?UM HLAÐVARPIÐ</b
29/11/20231 hour 9 minutes 19 seconds
Episode Artwork

B2B Leads ráðstefnan 28 sept - sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi

Í þessum þætti af Gagnarök segja Ómar og Biggi frá B2B Leads ráðstefnunni sem mun fara fram hinn 28 september í hugmyndahúsinu Grósku í Vatnsmýrinni.Ráðstefnan er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er ætluð að hjálpa fyrirtækjum sem starfa á fyrirtækjamarkaði, betur þekktur sem B2B markaðurinn (Business to Business) og íslensku hugviti að vaxa út um allan heim. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun setja ráðstefnunÍslandi kraumar ótrúlega mikið af spennandi fyrirtækjum sem búin er að smíða frábæra vöru en vantar aðstoð við sölu- og markaðsstarf. Markmið ráðstefnunnar er að hjálpa fyrirtækjum, hvort sem þau eru rótgróin eða í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, að ná betri árangri í markaðsstarfi með því að nýta nýjustu aðferðir í stefnumótun, efnisgerð, herferðum og mælingum. Jafnframt verða nýjustu tækin og tólin á markaðnum skoðuð í þaulaTilgangur ráðstefnunnar ekki síður að búa til samfélag fyrir B2B
13/09/20231 hour 3 minutes 27 seconds
Episode Artwork

Listin við að búa til auglýsingar & kvikmyndir | Rúnar Ingi Einarsson, stofnandi, kvikmynda- & auglýsingaleikstjóri og framleiðandi hjá Norður

Gestur þáttarins er kvikmynda- og auglýsingaleikstjórinn og framleiðandinn Rúnar Ingi Einarsson sem hlotið hefur verðskuldaða athygli fyrir þátttöku sína í stuttmyndinni Fár sem hlaut nýlega sérstaka viðurkenningu á kvikmyndahátíðinni í Cannes.Rúnar Ingi hefur lengi verið talinn meðal þeirra allra bestu í bransanum og á mörg spennandi verkefni undir beltinu svo sem leikstjórn á auglýsingum fyrir alþjóðlegu fyrirtækin Volvo, Land Rover, Samsung, O2 og Nike svo dæmi séu nefnd. Hann leikstýrði jafnframt stiklu fyrir sjónvarpsþættina Game of Thrones og hefur ferðast um allar heim fyrir verkefni.Rúnar Ingi er menntaður með BA í lögfræði en fann snemma að áhuginn og ástríðan lá í kvikmynda- og auglýsingagerð. Hann byrjaði sinn feril sem ungur Steven Spielberg sem fékki vini sína í hverfinu til að leika í stuttmyndum. Síðan þá hefur hann komið víða við og unnið sem leikstjóri hjá framleiðslufyrirtækjum eins og New Land í Svíþjóð, Markenfilm í Þýskalandi, C
31/08/20232 hours 4 minutes 37 seconds
Episode Artwork

Verður Ísland leiðtogi í stafrænni þjónustu? | Andri, stafrænn leiðtogi og Vigdís, markaðsstjóri hjá Stafrænt Ísland

Gestir þáttarins koma frá Stafrænt Ísland. Þau eru Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi og Vigdís Jóhannsdóttir, markaðsstjóri.Stafrænt Ísland er sameiginlegt verkefni opinbera stofnana á Íslandi til að bæta stafræna þjónustu og gera líf okkar allra betra.Andri Heiðar stundaði MBA nám í Stanford háskóla í Kaliforníu með áherslu á frumkvöðlafræði, tækni og leiðtogafærni. Hann hefur komið víða við á sviði nýsköpunar og er einn af stofnendum Icelandic Startups og nýsköpunarkeppninnar Gulleggið, hann starfaði um árabil sem þróunarstjóri hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu LinkedIn. Hann stofnaði og rok sprotafyrirtækið Travelade áður en hann gerðist stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hjá verkefninu Stafrænt Ísland árið 2020.Vigdís er viðskiptafræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af markaðs- kynningarmálum. Hún hóf feril sinn hjá Íslenska útvarpsfélagsinu (sem síðar varð 365) þar sem hún starfaði fyrst sem verkefnastjóri á markaðsdeil
23/08/20231 hour 56 minutes 4 seconds
Episode Artwork

Flatur teymisstrúktur, Agile & markaðsmál hjá Gangverk | Ása rekstrarstjóri og Kristján Director Client of Relations

Gestir þáttarins eru Ása Rún Björnsdóttir, rekstrarstjóri og Kristján Aðalsteinsson, Director of Client Relations hjá stafrænu vöruhönnunar stofunni Gangverk.  Þátturinn fjallar ítarlega um kúlturinn, teymisstrúkturinn og aðferðafræðina sem Gangverk beitir til að búa til jákvætt, skilvirkt og afkastamikið umhverfi þar sem starfsmenn fá að gera það sem þau gera best.Gangverk er íslenskt fyrirtæki sem ef til vill margir hafa ekki heyrt um en hefur verið að gera virkilega góða hluti við ráðgjöf og innleiðingu á stafrænni umbreytingu fyrir fyrirtæki um allan heim. Fyrirtækið hlaut nýverið útflutningsverðlaun forseta Íslands.Ása sem heldur utan um daglegan rekstur hjá Gangverk starfaði áður hjá Símanum sem forstöðumaður Greiningardeildar, Hagdeildar og Vörustýringar.Kristján, sem starfar sem brú á milli viðskiptavina og teyma innan Gangverks, hóf sinn feril sem handboltaþjálfari og starfaði svo í ráðgjöf hjá N1 og viðskiptastjóri og hluthafi hjá auglý
18/07/20231 hour 59 minutes 31 seconds
Episode Artwork

Vörumerki, branding og neyslusálfræði | Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Öskju

Gestur þáttarins er Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri bílaumboðsins Öskju. Þátturinn er smekkfullur af skemmtilegum umræðum þar sem Ómar og Helga, samfélagsmiðla sérfræðingur hjá Digido, ræða við Sigríði um þá töfra sem fylgja góðu branding.Við ræðum vörumerki eins og Coca Cola, Pepsi, apple, snyrtivörurisa, Benz, Húsasmiðjuna, Krónuna, Blush, Indó og fleira. Og svo koma raðmorðingjar einhversstaðar fyrir þarna líka.Sigríður er með yfir 10 ára reynslu af markaðsmálum og hefur lengi haft mikinn áhuga á vörumerkjum og branding. Að eigin sögn stafar áhuginn af forvitni hennar á mannlegri hegðun. Hún byrjaði sinn feril í markaðsgreiningu hjá Birtingahúsinu áður en bauðst tækifæri til að fara til Cintamani sem markaðsstjóri. Sigríður skipti svo yfir til Ölgerðarinnar þar sem ég starfaði sem vörumerkjastjóri Pepsi ásamt því að taka virkan þátt í vöruþróun félagsins. Fyrir rétt rúmu ári tók hún svo stökkið yfir til Öskju árið 2022 þar sem hún st
13/06/20231 hour 9 minutes 5 seconds
Episode Artwork

B2B markaðsmál eru vísindi & list | Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri Men&Mice

Gestur þáttarins er Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri B2B hugbúnaðarfyrirtækisins Men &amp; Mice og er óhætt að segja að þátturinn er hlaðinn gagnlegum ráðleggingum fyrir alla sem vinna í B2B geiranum (sala og markaðsetning fyrirtækis til fyrirtækis).Elvar byrjaði sinn markaðsferil sem ráðgjafi hjá Pipar/TBWA  en færði sig yfir til Men&amp;Mice þar sem hann byrjaði sem stafrænn markaðsstjóri áður en hann var gerður að markaðsstjóra á síðasta ári. Men&amp;Mice sérhæfir sig í net innviða hugbúnaðarlausnum fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki svo sem Microsoft, FedEx, Nestle og Harvard Business School. Stærstur hluti af tekjum fyrirtækisins koma frá Bandaríkjunum en fyrirtækið hefur verið að vaxa hratt í Evrópu og öðrum heimshlutum.Í þættinum köfum við ofan í:Alþjóðlega markaðsstrategíu Men&amp;MiceB2B kauphegðun og kaupferliHerferðir á Linkedin, Facebook, Google, Webinars ofl.Tilraunir með RedditMikilvægustu mælikv
06/06/20231 hour 16 minutes 30 seconds