Winamp Logo
Draumaliðið Cover
Draumaliðið Profile

Draumaliðið

Icelandic, Sports, 1 season, 111 episodes, 1 day, 16 hours, 3 minutes
About
Í Draumaliðinu fáum við íslenska knattspyrnumenn til að velja besta byrjunarlið skipað af leikmönnum sem þeir hafa spilað með á ferlinum. Allt saman í boði Lengjunnar og Session Craft Bar.
Episode Artwork

EMU17 2007 hidden bonus track: Frásagnir í heild

Í þeirri röð sem þeir heyrast: Brynjar Benediktsson, eigandi og framkvæmdastjóri Soccer and Education. Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður og fyrrum samherji Thierry Henry. Finnur Orri Margeirsson, Bliki og líkamsræktarstöðvareigandi Frans Elvarsson, Keflvískur Hornfirðingur Hólmar Örn Eyjólfsson, einn leikjahæsti unglingalandsliðsmaður Norður Evrópu. Arnar Sveinn Geirsson, bakvörður og mannauðsstjóri Trausti Sigurbjörnsson, kóngur Arnar Darri Pétursson, stáltakka kúreki
7/25/202427 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

Svonar var Ísland YOUTH SPECIAL: EMU17 EURO 2007 ft. Ragnar Þór Gunnarsson frkvstjóri

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD KAGGI MÁS SPECIA. Fórum yfir það þegar Ísland komst í fyrsta skipti á stórmót í gegnum alvöru dæmi, ekki í gegnum það að vinna Lettland og gera jafntefli við Austurríki. Undankeppni, milliriðill og stemning. Gullkynslóðin er mætt en það sem meira er, týnda gullkynslóðin er alls ráðandi og hún er mætt til að skila skömminni!! Gestur: Ragnar Þór Gunnarsson, fyrrum unglingalandsliðsmaður og kóngur Viðmælendur Guðlaugur Victor Pálsson Hólmar Örn Eyjólfsson Arnar Sveinn Geirsson Frans Elvarsson Trausti Sigurbjörnsson Brynjar Benediktsson Finnur Orri Margeirsson Arnar Darri Pétursson Alexander Lúðvígsson
7/12/20242 hours, 11 minutes, 1 second
Episode Artwork

Svona var Ísland '04-'06

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Konan hans Viktors í Sandgerði sagði farir sínar ekki sléttar, af nokkrum sköpuðum hlut. Ívar Ingimars og Jói Kalli voru í sambærilegum hugleiðingum en Ásgeir og Logi gáfust ekki upp. DV setti upp álitshópa við minnsta tilefni og Jakob Bjarnar hélt úti sýningum í hverju blaði. Svona var Ísland '04-'06! Haldiði áfram að negla á okkur í leiðréttingahorninu!
7/4/20243 hours, 19 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

SVONA VAR ÍSLAND 02-04:

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF #WeGoAgain með Atla Mikson, en on a short lease. Gleðitíðindi fyrir Guðmund Felix en einn stórtækasti íslenski slöngueigandinn varð fyrir tjóni. Guðjohnsen tekur við keflinu og Helugson öskrar í andlitið á Kahn. Þjóðin leyfði sér að dreyma eftir að Astro breyttist í Pravda en Valentin Ivanov var á öðru máli.
6/23/20243 hours, 11 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '00-'02: Gísli á Napster og Atli á Parken

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland.
6/15/20242 hours, 32 minutes, 1 second
Episode Artwork

Aron Einar Gunnarsson

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað.
6/3/20241 hour, 23 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland ft. Rúnar Kristinsson (1986-2000)

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn). Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis.
2/20/20241 hour, 48 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið '98-'00: Elsku drengurinn

Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum við ekki að meina stúkurnar sem settar voru fyrir aftan mörkin fyrir leikinn á móti Frökkum, enda voru þær leigðar frá Svíþjóð #ÞærSænsku. Tvö stig skilin eftir í Jerevan, barningur við Barthez, rýtingur frá Rebrov, eitt stykki Ingólfur kampakátur Karpin og give it Kio Briggsy til the end of the season. "Þetta er liðið okkar". Svona var Ísland '98-'00 Negliði á Thule og félaga sögum og leiðréttingum, ekki veitir af.
2/11/20243 hours, 18 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '96-'98: Enter the Dragon

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98. Dæliði inn í Thule hornið!
1/26/20243 hours, 2 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '94-'96: Ræktun og Roland litli Macintosh

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myndavélina í andlitinu á honum allan leikinn fyrir hönd VISAsport. Við krufðum það hvernig POX kom til landsins og viljum fá að vita meira um skemmtistaðina Síbería og Ingólfskaffi. Ásgeir lét undan þrýstingi og setti lyfjafræðing í vörnina eftir nákvæmar skallaæfingar. Under the Solna Sun þar sem Ravelli blindaðist. Svona var Ísland 94'96. Dæliði í Thule leiðréttingahornið, takk!
1/19/20243 hours, 24 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Kristján Finnbogason

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsinn og hverjir eru settir á bekkinn?
1/4/20241 hour, 28 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

Svona Var Ísland '92-'94: Það eru töfrar

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að sæti á Heimsmeistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum. Það voru ferskir vindar, sem þó stundum blésu á móti okkur. Það var maður sem vildi berbrjósta þjónustukonur á pizzastað. Það voru súpergrúppur og það voru nýliðar. En fyrst og síðast, það voru töfrar. Svona var Ísland 1992-1994. Dritiði á okkur leiðréttingum.
12/22/20233 hours, 7 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '90-'92: Til hvers?

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92.
12/1/20232 hours, 59 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '88-'90: Það sem næstum sást

Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim +a öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Leninvellinum. Viðmælendur: Ólafur Helgi Kristjánsson, prófessor, Pétur Úlfar Ormslev, tía, og Halldór Ómar Áskelsson, Sovétbani.
11/24/20233 hours, 9 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Patrik Andersson

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Patrik Andersson picks the best eleven of his former teammates and goes over his career highlights. Patrik Andersson spilaði með m.a. með Bayern Munchen og Barcelona. Veltum steinum um hvernig er að klúðra víti í úrslitaleik Champions League en samt vinna, hvernig er að skora sigurmarkið með síðustu spyrnu í Bundesligunni sem tryggir titilinn og
11/14/202353 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

Svona var Ísland '86-'88: Mikið lagt inn, lítið tekið út

LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Svona var Ísland kryfur tíðaranda og stemningu landans tvö ár í senn, sérstaklega í tengslum við þátttöku karlalandsliðs Íslands í fótbolta í undankeppnum stórmóta. Viðmælendur þáttarins: Sigmundur Ó Steinarsson, geit í blaðamennsku, og Arnór Guðjohnsen, methafi yfir flestar aukaspyrnur á einu tímabili í efstu deild á Ísland.
11/13/20232 hours, 36 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2014

LENGJAN - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTIN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Það hlaut að koma að því að 5 klukkustunda múrinn yrði rofinn en það var einfaldlega nauðsynlegt að koma til skila að Sölvi Fannar lék í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my Table og hverjir fengu mention á kreditlistanum á Algjör Sveppi 4. Metrómenn voru út og Timburmenn komnir inn og mesti timburmaðurinn færði almúganum og öreigum flöskuborðsmenningu með ótrúlegu útspili. Ein af allra fyrstu vegferðum íslenskrar knattspyrnu var keyrð af stað með BG4 við stýrið og það er svo sannarlega eitthvað brewing í Garðabænum undir stjórn powerpoint sérfræðingsins Rúnars Páls. Þetta er síðasti skipulagði þátturinn af Svona var sumarið í bili. Bíðið spennt eftir þáttunum Svona var Ísland fyrir meiri nostalgíu og meiri fótbolta. Sama húsnæði, sama starfsemi.
10/20/20235 hours, 49 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið UPPGJÖR 2003-2013 - ft. AGG10 og Brunnurinn

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlusta og vilja koma að sögum í leiðréttinga- og söguhornið, ekki hika við að heyra í okkur!
7/26/20221 hour, 54 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

Lárus Orri Sigurðsson

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
7/10/20221 hour, 38 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

Svona voru viðtölin 2013 - Extremely hidden bonus track

Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
7/7/202224 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Hannes Þór Halldórsson

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað leikmönnum úr íslenskum félagsliðafótbolta af því það er fyrir löngu búið að tæma allt árangri íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarin ár. Við ræddum allt frá Vali Gunnarssyni tölvukennara til Jens Petter Hauge leikmanns AC Milan, en þó aðallega Frá Magnúsi Einarssyni og Dr. Leður til Rúnars Kristins og Heimis Guðjóns í íslenska boltanum.
6/30/20221 hour, 59 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2013

LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur árum. Leikmenn hentuðu ekki gildum Breiðabliks og leikmaður KR smalaði saman öllum helstu listamönnum landsins og tók þá með sér á sannkallaðan revenge tour yfir 22 leiki. Svona var sumarið 2013. Minnum á leiðréttingahornið, það er heldur betur að reynast nauðsynlegt! Viðmælendur: Viðar Örn Kjartansson - leikmaður Fylkis 2013 og fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Casio. Guðmundur Steinn Hafsteinsson - leikmaður Víkings Ólafsvíkur 2013 og harðasti Top Gun maður þjóðarinnar. Kristján Óli Sigurðsson - viðmælandi í Akraborginni veturinn 2012 og sannleiksvél.
6/23/20224 hours, 21 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

Hannes Þorsteinn Sigurðsson

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem Nýi Prófessorinn en fyrst og fremst er hann stórskemmtilegur sögumaður og geggjaður gaur.
6/4/20222 hours, 22 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Svona voru viðtölin 2012 (Very hidden and secret bonus track exclusive)

Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni. Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart. Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum.
5/24/202249 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2012

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya fjöllin og Lee litli Bucheid hefur ekki sagt sitt síðasta. Svona var sumarið 2012. Viðmælendur: Alexander Scholz Baldur Sigurðsson Jón Daði Böðvarsson
5/23/20224 hours, 36 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

Svona voru viðtölin 2011 Hidden Bonus Track

Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011 Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu. Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili. Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reyndar á Gary Martin og Gauja Baldvins en það kemur fyrir á bestu bæjum.
5/2/202231 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2011

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda utan um í Excel skjali eða er kannski bara best að vita þetta sjálfur? Hvað svo sem gerist þá ætti þessi þáttur að veita ykkur byr undir báða vængi, hvort sem þið eruð andskotans karlmenn eða andskotans konur. Svona var sumarið 2011.
4/28/20224 hours, 21 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

Svona voru viðtölin 2010 - HIDDEN BONUS TRACK

Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson. Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiðis allt frá Arnari Sveini og VÖK.
4/10/202248 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2010

LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir Jóa og fengum play-by-play greiningu á seasoninu frá Prófessornum sem við stóðum með Hlið við Hlið og Keyrðumettígang ásamt því að við heyrðum samsæriskenningar og magnaðar sögur frá unglingi sem elti hypeið á Selfoss en endaði á að grípa í skottið á vonbrigðum. Svona var sumarið 2010. Viðmælendur: Ólafur Kristjánsson, prófessor. Arnar Sveinn Geirsson, sérfræðingur í löngum innköstum. Viðar Örn Kjartansson, einn markahæsti Íslendingurinn í atvinnumennsku.
4/8/20224 hours, 30 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2009

Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og Valsmenn voru staðráðnir í að láta efnahagsástand ekki hafa áhrif á leikmannahópinn sinn. Risinn var þó álíka illviðráðanlegur og Bubbi Morthens var úrillur þegar hann vaknaði við vondan draum og ákvað að rebranda sig. Svona var sumarið 2009 Viðmælendur: Matthías Guðmundsson, fórnarlamb camphylobacteriu Ólafur Páll Snorrason, sonur heiðursforseta Fjölnis. Halldór Orri Björnsson, lenti í það að ruðst var inn í tjaldið hans á þjóðhátíð af snargeðveikum handboltamanni sem vildi fá eiginhandaráritun.
3/17/20223 hours, 45 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2008

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO’S Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólafs gaf Rúnari Kristins rétta formúlu fyrir Íslandsmeistaratitli en þekkti Rúnar allar breyturnar? Changing of the guards, we’ve been here before, pallaleikur og Höskuldur Eiríksson að snúast í hringi í kringum Ashley litla Young. Svona var sumarið 2008. Viðmælendur: Simun Eiler Samuelsen, besti færeyski leikmaður efstu deildar frá upphafi. Atli Viðar Björnsson, hýsti um stund Kristinn Björnsson, Hlíðamann ekki skíðamann, í fjölskylduhúsi sínu á Dalvík.
2/28/20224 hours, 9 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2007

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO’S. Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór upp á fjall og Ellý Ármanns skrifaði kynlífsfantasíu um 16 ára starfsmann Garðlistar. Svona var sumarið 2017. 2017? nei nei, 2007. Viðmælendur: Sigurbjörn Hreiðarsson, kennari í Kópavogi.
2/3/20223 hours, 48 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

Hörður Magnússon

LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
12/2/20211 hour, 33 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2006

Það eru Magni-ficent hlutir að eiga sér stað í íslenska samfélaginu og þjóðin tekur ástfóstri við Gilby Clarke og Dave Navarro. Hetja yfirgefur Vesturbæinn og er staðráðinn í að kenna þeim lexíu og stjórnarmenn halda áfram að reyna að fella Börkinn. Splash TV og MySpace ryðja sér til rúms, Sigursteinn Gíslason semur við leikmann af lagernum hjá Eimskip. Óli Jó þarf að fara í hefilbekkinn og hlustendur þurfa að taka afstöðu og ákveða hvort þau séu B-hliðar fólk eða alætur á tónlist, takk.
11/26/20213 hours, 40 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2005

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO’S Það myndast gjá milli áskriftarþjónustu sem íslenska ríkið neyðir fólk til þess að kaupa af sér og þjóðar við val á því hvernig skal velja Eurovision lag. Lúðurinn lætur í sér heyra í Vesturbænum og Börkur er tekinn af appelsínum á Hlíðarenda með flugbeittum hníf. Risinn er vaknaður, búinn að tannbursta sig og klár í daginn og poppstjörnur slá sig til riddara. "Jónschi!? Haaaaaaa?!" Viðmælendur Þorbjörn Atli Sveinsson - Herra September Gunnar Hilmar Kristinsson - bomban.
11/12/20213 hours, 12 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2004

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINO'S Kennaraverkfallið kom eins og himnasending í líf bólugrafinna unglinga með tilheyrandi áhorfi á Paradise Hotel á sama tíma og leikmönnum var bannað að fagna með því að fara úr að ofan. Gefum Nylon þá virðingu sem þær eiga skilið. Veigar Páll er í eigu kýpverska fjárfestingafélagsins Urania Trade Ltd og sjómaður frá Grindavík syngur sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Risinn vaknaði, og hélt svo sína leið.... Jáááááááá, hann hafði fengið huuuuuuugmyyyynd!
10/29/20213 hours, 9 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2003

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Það er tilgerð að halda því fram að Botnleðja hefði átt að fara fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2003. Kveður við nýjan tón í íþróttaumfjöllun með tilkomu stórs karakters inn á íþróttadeild DV og KR gerir tilraunir til þess að stofna ofurlið. Bragi Valdimar semur fótboltalag og goðsagnir snúa aftur í íslenska landsliðið. Þróttarar raða inn mörkum í boði hins eina sanna Domino's Tríós, en bald and beautiful Carnell bíður færis fyrir aftan þá eins og sláttumaðurinn slyngi.
10/15/20212 hours, 54 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið UPPGJÖR: 1992-2002

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Litum yfir farinn veg í ljósi þess að changing of the guards er svo sannarlega að ganga í garð. Völdum draumalið þessa tíma, hömruðum á því sem að þurfti að hamra á og hringdum eitt mikilvægasta símtal þáttanna til þessa. Hver skrifaði barnabókaseríurnar "Fjör í"? Hver er útibússtjóri Sjóvá á Akranesi? Viðmælendur: Óskar Ófeigur Jónsson, sá maður sem hefur fært íslenskri íþróttaumfjöllun mest í nútímaknattspynru.
10/8/20211 hour, 57 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2002

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Árið er 2002. Við fáum ekki að vera með í Eurovision en Skífan kaupir upp allar rapphljómsveitir landsins og gefur þeim plötusamning. Fólk kaupir sér hringitóna eins og það eigi lífið að leysa og starfsmenn Skjás Eins vöknuðu á bömmer á fyrsta sunnudegi hvers mánaðar. Gylfi Orrason skapar sér nafn í Árbænum og í Kastljósinu, Willum veðjaði á réttan hest þegar mest var undir (þó honum finnist ís ekki góður) og Mr. September heldur í hefðir. Minni á leiðréttingahornið Viðmælendur: Jón Skaftason, geit í Vesturbænum og maki oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kristinn Tómasson, á stuðningsmannaklúbb skírðan í höfuðið á sér.
9/30/20212 hours, 32 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2001

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ Árið 2001 vorum við relegated úr Eurovision og sendir í eins árs bann eftir að hafa sent Noel Gallagher eftirhermu og suðrænan Sauðárkróksstrák til leiks. Skagamenn voru gjaldþrota og hringt var í kunnuglegan menn sem átti að baka þá út úr vandræðunum. KRingar reyndu að fá Daniel Amokachi til að fylla í skarð Andra Sigþórsson en fyrir því var lítil innistæða. XXX Rottweiler héldu partý í Árbænum og buðu engum sem Þormóði Egils líkaði ekki en á endanum stóð eitt lið uppi sem sigurvegari. Þeir voru ólíkir innbyrðis, en mynduðu eina sterka heild. Minnum á leiðréttinga og söguhornið í skilaboðum á miðlunum! Viðmælendur: Sturlaugur Haraldsson, 6 faldur Íslandsmeistari sem var að senda boltann á staðinn sem átti að taka aukaspyrnuna en ekki að taka aukaspyrnuna sjálfa. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, fyrrum landsliðsmaður sem heldur því fram að Sturlaugur hafi verið að taka aukspyrnuna. Leifur Grímsson, fyrrum rekstrarstjóri KR-sport, Húsvíkingur og Leedsari
9/23/20212 hours, 42 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 2000

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION - SJÓVÁ Sumarið 2000 hætti ungt fólk að spila fótbolta upp á Akranesi og fór að rúnta. Eyjamenn voru nokkrum sekúndum frá því að klófesta tíunda besta markmann heims. KR færði sig yfir í normal fit XXL Reebok treyjur og Páll Guðlaugsson sótti nýja Brasilíumenn. Áhorfendur fengu lítið fyrir peninginn þegar kom að gæðum knattspyrnunnar og umdeildur leikur í lokaumferðinni. Minnum sem endranær á leiðréttinga- og söguhornið. Dæliði þessu á okkur Viðmælendur: Jens Martin Knudsen, eini Færeyingurinn til að þjálfa í efstu deild á Íslandi og goðsögn á Ólafsfirði sem elskaði fyndnar húfur.
9/16/20212 hours, 45 minutes
Episode Artwork

Danny Guthrie

LENGJAN - DOMINOS - THULE - BLUSH Danny Guthrie spilaði með Liverpool, Newcastle, Bolton og Reading í Premier League og spilaði með haug af geggjuðum spilurum. Þvílíkur gentleman and a scholar og valdi draumaliðið sitt og svaraði öllum þeim spurningum sem í hann voru fleygðar. Danny Guthrie picks his best starting eleven of players that he played with in his career.
9/6/20211 hour, 35 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Bjarni Benediktsson

LENGJAN - THULE - DOMINO'S - BLUSH.IS Bjarni Ben reif Stjörnuna upp í hæstu hæðir ásamt fyrstu gullkynslóð Garðabæjar og spilaði ca 170 leiki með félaginu oftar en ekki sem fyrirliði áður en hann lagði skóna á hilluna vegna meiðsla.
8/30/20211 hour, 16 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1999

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH Biðin var á enda árið 1999, við vorum loksins mætt aftur í Eurovision! Popptíví hóf göngu sína og Þórhallur miðill spáði fyrir um framtíð Heimi Guðjónssonar. KRingar settu allt traust sitt á nýtt rekstrarform þar sem gildi félagsins voru JÁKVÆÐNI-TRÚ-GLEÐI, það var hrækt í andlitið á Loga Ólafssyni og ælt yfir Ólaf Ragnar Grímsson í stúkunni á Ísland-Rússland. Met féllu, sársaukar voru linaðir og hjörtu voru brotin. Svona var sumarið 1999. Viðmælendur: Magnús Orri Schram
7/15/20212 hours, 35 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1998

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH Allir og ömmur þeirra fóru í atvinnumennsku eftir tímabilið 1997 en íslenska þjóðin samdi við félagsfælin háhyrning til að fylla í það skarð. Knattspyrnufólk landsins flykktist af Astró þegar handboltamenn fóru að gera sig gildandi þar og færðu sig yfir á Skuggabarinn. Íslandsvinurinn Louis Saha og Nicolas Anelka léku listir sínar á Akranesi, við gerðum ekkert í Evrópu og tveir ástsælustu feðgar þjóðarinnar kíktu á íslenska grasvelli. Viðmælendur: Magnús Orri Schram, hluti af hinni mögnuðu B. Schram ætt og fyrsti framkvæmdastjóri KR-sport. Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Bjargvætturinn 2.0 frá Keflavík.
7/7/20212 hours, 25 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1997

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Árið 1997 kynntist Melanie Brown Fjölni Þorgeirssyni, Geir Sveinsson var með minnstu hendur íslenska handboltalandsliðsins og Skítamórall gerðu einhver farsælu félagsskipti í íslenskri tónlistarsögu. Utan þess var allt í báli brand upp á Akranesi og í Frostaskjólinu en Keflvíkingar og Eyjamenn lifðu í undralandi goðsagnar sem hafði snúið heim annars vegar og sérfræðings í landsbyggðarþjálfun hins vegar. Viðmælendur: Þorsteinn Þorvaldsson, fyrrum sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði og maðurinn á bakvið ævintýri Leifturs í efstu deild. Valdimar Kristófer Sigurðsson, lengi vel markahæsti leikmaður Íslandsmótsins og á að eiga styttu af sér í Borgarnesi.
7/1/20212 hours, 31 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1996

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Árið 1996 hóf Séð&Heyrt göngu sína, Sigurjón Kjartansson x Baltasar Kormákur collabið byrjaði með sýningunni Áfram Latibær og tímamóta risaeðlusýning var haldin í Kolaportinu. Hilmir snéri heim upp á Skaga og gerði allt til þess að halda Íslandsmeistaratitlinum frá Mordor eftir 28 ár af sársauka hjá KR sem voru komnir með nýjan Sauron í brúnna. Hajrudin Cardaklija varði síðan klikkað mörg víti. Viðmælendur: Gunnlaugur Jónsson, annar hluti tvíeykisins Gulli&Geiri og hafsent af Skaganum. Hilmar Björnsson, umdeildur hægri bakvörður/kantmaður KRinga og núverandi íþróttastjóri fréttadeildar RÚV.
6/25/20212 hours, 17 minutes, 58 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1995

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Skaginn átti ekki bara besta fótboltalið landsins heldur fannst þar líka elsta KitchenAid vél Evrópu. Valsmenn ætluðu að kaupa sér lyklana að árangri FH undanfarin ár á leikmannamarkaðnum. Landsbyggðin upplifði sitt mesta blómaskeið í íslenskri knattspyrnu en allt saman blikknaði þetta í samanburði við mannlega harmleikinn sem heimsmeistaramótið í handbolta á Íslandi var. Viðmælendur: Víðir Sigurðsson, einn stofnenda Draumaliðsdeildar DV, fyrstu íslensku fantasy deildarinnar, og einn af íþróttafréttamönnunum sem sniðgekk Olgu Færseth sem íþróttamann ársins árið 1994. Arnar Gunnlaugsson, lenti í 2. sæti í 1á1 móti hollensku deildarinnar þar sem hann vann Philip Cocu og Gerald Sibon en tapaði fyrir Edgard Davids í úrslitaleik
6/16/20211 hour, 51 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1994

LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS SVIPTINGAR! Guðjón Þórðarson færir sig yfir í Vesturbæinn og reynir að taka allt Skagaliðið með sér. Hver var eini knattspyrnumaðurinn sem komst á lista yfir 25 bestu elskhuga landsins? Hvernig er hægt að vera yfirburðarleikmaður í deildinni 15 ára gamall? Fórum svo yfir ævarandi smánarblett íþróttafréttamanna vegna kjörs á íþróttamanni ársins fyrir árið 1994. Viðmælendur: Rúnar Kristinsson, mögulega besti leikmaður Íslandsmótsins sem aldrei varð Íslandsmeistari.
6/9/20211 hour, 48 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1993

Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is Hvernig fóru Skagamenn að því að gera enn betur þrátt fyrir að missa tvo af sínum bestu leikmönnum? Hverjir voru raunverulega bestu skemmtistaðir landsins? Hvernig fóru Rage Against The Machine að því að gera FH að toppliði? Hvernig gerist það að einu börnin í heiminum fædd á árunum 1983-1995 sem þekkja teiknimyndina Prinsessan og Durtarnir séu frá Íslandi? Farið yfir sumarið 1993 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla. Viðmælendur: Guðjón Þórðarson, geit. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og drekkur frítt til dauðadags í Vestmannaeyjum fyrir að vera Bjargvætturinn
6/2/20211 hour, 28 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

Svona var sumarið 1992

Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is Pele á Egilsstöðum, óstöðvandi tvíburar í fullkomnu valdajafnvægi og hassneysla hjá menningarelítu Akureyrar. Farið yfir sumarið 1992 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla. Viðmælendur í þættinum: Guðmundur Hreiðarsson, fyrrum landsliðsmarkvörður og professional hand model. Eysteinn Húni Hauksson, miðjumaður í liði Hattar sem setti Íslandsmet í því að halda hreinu árið 1992.
5/26/20211 hour, 36 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Auðunn Blöndal

LENGJAN - R3 RÁÐGJÖF (www.r3.is) - DOMINO'S - TUBORG - WHITEFOX OG SKRUF FJARÞJÁLFUN.IS - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK Auðunn Blöndal ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta þangað til hann áttaði sig á því að hann nennti því ekki alveg. Alvöru Draumalið úr grasrótinni af landsbyggðinni.
3/17/202144 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

Arnar Sveinn Geirsson

Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn, Íslandsmeistarinn, forseti leikmannasamtakanna og pistlahöfundurinn Arnar Sveinn Geirsson gerði upp meistaraflokksferilinn sem hófst árið 2008 þegar Óskar Bjarni og Willum háðu hatramma deilu um örlög hans í íþróttum. Tveir klukkutímar af tandurhreinni íslensku.
3/9/20212 hours, 11 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Bjarni Jóhannsson

LENGJAN - DOMINO'S - WHITE FOX OG SKRUF - FJARÞJÁLFUN.IS - TUBORG - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK Við Bjarni möluðum saman í tæplega 140 mínútur og náðum ekki einu sinni að fara yfir allt frá þjálfaraferlinum hans þegar hann valdi draumalið þeirra leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Þjálfaraferill sem spannar einhver 40 ár og lið frá öllum landshornum hjá sennilega leikjahæsta þjálfara Íslandsmótsins.
3/3/20212 hours, 16 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

Gunnar Nielsen

Lengjan - Domino’s - White Fox og Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - Suit Up Reykjavík Hálf íslenski Færeyingurinn geðþekki var í aðalliðshóp hjá Blackburn og spilaði með Manchester City. Draumalið eins og þið hafið aldrei heyrt það áður.
2/25/20211 hour, 36 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Þórður Guðjónsson

Eini Íslendingurinn sem hefur skorað í Premier League, La Liga og Bundesligunni. Deilir markametinu í efstu deild á Íslandi, er sá leikmaður sem hefur skorað í flestum leikjum í röð á Íslandi, var dýrasti leikmaður í sögu Las Palmas og er goðsögn hjá Genk. Þórður sagði frá því þegar nágranni hans Taribo West predikaði fyrir leikmannahóp Derby, hvað var í vatnsbrúsanum hans Giorgi Kinkladze hjá Derby, þegar Houllier reyndi að fá hann til Liverpool og þegar hann þurfti að skokka um í garðinum með Robert Jarni.
2/15/20211 hour, 34 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Steven Lennon

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Disputed record holder for most goals scored in a single season GpG. Undisputed record holder for most goals scored by a foreigner in Iceland’s top flight. Ég og Lennon fórum yfir tímann á Íslandi í bland við alvöruna og hörkuna hjá honum í Glasgow Rangers.
2/7/20211 hour, 18 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Arnór Smárason

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Arnór Smárason var gulldrengur '88 kynslóðarinnar og fór 15 ára gamall einn síns liðs til Heerenveen og gerðist atvinnumaður í fótbolta. Hann var erlendis þangað til í janúar 2021 og því spannar atvinnumannaferillinn tæp 17 ár sem er einn lengsti samfelldi atvinnumannaferill Íslendings. Arnór varð bikarmeistari með Heerenveen árið 2009 þegar liðið vann sinn eina titil í sögu félagsins, varð síðar bikarmeistari með Esbjerg, féll með þremur liðum, sótti launin sín tveimur árum of seint í skjalatösku til Rússlands en umfram allt fékk hann eitt besta viðurnefndi sem Íslendingur í atvinnumennsku hefur fengið, Smáradona.
2/2/20211 hour, 38 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

Arnór Guðjohnsen

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Arnór Guðjohnsen þarfnast nákvæmlega engrar kynningar. Liðið hans er stútfullt af landsliðsmönnum, Heims- og Evrópumeisturum, fyrrum leikmönnum Real Madrid og Inter Milan og gulldreng Heimsmeistaramótsins. Í liðið komast t.d ekki leikmenn sem fengu gullskóinn á HM eða aðrir HM sigurvegarar. Góða skemmtun.
1/26/20211 hour, 50 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Almarr Ormarsson

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Almarr Ormars var hluti af gullkynslóðinni og styrkti stöðu okkar í u21 umspilinu gegn Skotum 2011 með einum mesti bylmingi sem Laugardalsvöllurinn hefur séð. Sú leið sem hann fetaði í framhaldinu fellir hann þó í kjölfarið því miður í týnda gullkynslóðarflokkinn sem Draumaliðið hefur margoft farið yfir. Leiðin hans var svo sem ekki svo slæm enda hefur hann verið einn af betri miðjumönnum Pepsi Deildarinnar undanfarin ár, orðið bikarmeistari þrívegis, spilað með fjórum liðum í efstu deild og er þar af leiðandi með þrusu draumalið.
1/20/20211 hour, 32 minutes, 58 seconds
Episode Artwork

Aron Jóhannsson

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. The Kid from Mobile who dared to dream. Aron Jóhannsson hefur unnið hollensku bikarkeppnina, spilað í Evrópukeppnum, spilað í stórliði í Bundesligunni og er eini Íslendingurinn sem hefur unnið leik á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.
1/11/20211 hour, 50 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, VHV4, Villi Vill eða bara einfaldlega kóngurinn. Maðurinn sem hefur í áraraðir barist fyrir okkar virtustu mannréttindum á sér auðvitað knattspyrnuferil sem er litaður af frábærum sögum og góðri stemningu. Villi er Frammari og Köttari sem einnig lék með Víkingi Reykjavík og Hvöt á Blönduósi en vegna tímaeklu og skitu gleymdist algjörlega að ræða þann kafla og eru allir Blönduósingar (þó sérstaklega Pétur í Sörlaskjóli, Kristján Óli Sigurðsson og Sigvaldi Fannar Jónsson)beðnir innilegrar afsökunar á því. Villi á auk þess haug af unglingalandsleikjum fyrir Íslands hönd og hefur ýmsa fjöruna sopið þegar kemur að knattspyrnu hvort sem er innan eða utan vallar. Við ykkur kæru Draumaliðsaðdáendur segi ég einfaldlega, Auguri!
11/6/20201 hour, 12 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Þorvaldur Örlygsson

Þorvaldur Örlygsson á sennilega ein vanmetnustu félagsskipti síðari ára þegar KA seldi hann til þáverandi stórliðs Nottingham Forrest á Englandi. Hann varð fjórði Íslendingurinn til að skora þrennu fyrir landsliðið, fyrsti Íslendingurinn til að skora í Premier League, hefur sápað bakið á Brian Clough og átti þátt í því að Sir Alex Ferguson fékk ekki reisupassann frá Manchester United.
10/28/20201 hour, 38 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

Luca Lúkas Kostic

ATH - Hljóðið er í brasi fyrstu 19 mínúturnar en verður fullkomið eftir það. Afsakið þetta. Luca Kostic mætti til landsins í mars 1989 og skrifaði undir hjá Þór Akureyri eftir 10 ára veru í efstu deild í Júgóslavíu. Síðan þá hefur hann unnið ótrúlegt starf fyrir íslenska knattspyrnu sem leikurmaður, þjálfari og í hæfileikamótun á ungum leikmönnum. Milli þess sem hann sagði frá Draumaliðinu sínu var ýmsum steinum veltum í tengslum við gullkynslóð íslenska landsliðsins sem Luca gaf mörgum hverjum sín fyrstu tækifæri í íslenska landsliðsbúningnum og snert á öðrum leikmönnum sem hefðu átt að meika það en gerðu ekki eða gerðu það á öðrum vígsstöðum #TyndaGullkynslodin. Virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall við mann sem þekkir knattspyrnuna inn og út og litið yfir rúmlega 30 ár af förnum veg í íslenskum fótbolta!
10/21/20201 hour, 42 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

Fjalar Þorgeirsson

Það eru fáir sem hafa spilað með jafn mörgum félögum úr Reykjavík í efstu deild eins og Fjalar Þorgeirsson. Hann er Þróttari að upplagi en spilaði auk þess með Fram, Fylki, KR og Val. Um aldamótin var hann varamarkmaður íslenska landsliðsins sem var hæsta mögulega staða sem aðrir markmenn en Árni Gautur Arason gátu hugsað sér en á árunum sem fylgdi var hann alltaf trúr sínu uppeldisfélagi og landsliðsþjálfararnir lítið að horfa til botnbaráttunnar í efstu deild eða íslensku b deildarinnar en okkar maður var þó alltaf og lengi síðar einn altraustasti markmaður sem deildin hefur séð. Að öllum líkindum með öruggt sæti í Draumaliði þeirra leikmanna sem aldrei unnu stóran titil á ferlinum. Fjalar er reyndar aðallega drulluskemmtilegur og sagði góðar sögur þegar hann valdi Draumaliðið sitt
10/14/20201 hour, 26 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Helgi Valur Daníelsson

Helgi Valur Daníelsson er fæddur í Uppsala, ólst upp á Selfossi en mætti sprækur í Lautina 12 ára gamall hvar hann er auðvitað goðsögn. Helgi fór ungur að árum til Peterborough United þar sem hann lærði að drekka og spila fótbolta en kom aftur heim endanlega 22 ára og spilaði með Fylki í þrjú ár áður en hann hélt aftur í atvinnumennsku sem stóð svo yfir í tæp 10 ár í Svíþjóð, Þýskalandi, Portúgal og Danmörku. Helgi Valur er um margt ólíkur steríótýpunni af fótboltamanni og hann gerði upp ferilinn í hreinskilnu, einlægu en fyrst og síðast virkilega skemmtilegu spjalli þar sem hann fór meðal annars yfir ljóðið sem hann samdi í tilefni 75 ára afmælis Alþýðusambandsins og þegar hann reyndi að gefa Jimmy Bullard á kjaftinn.
10/6/20201 hour, 39 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Davíð Þór Viðarsson

Það má færa sterk rök fyrir því að Davíð Þór Viðarsson sé besti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi. Hann kom 17 ára gamall með FH upp í efstu deild og hefur verið fastamaður og fyrirliði í liðinu síðan þá ef frá eru talin tvö þriggja ára stopp í atvinnumennsku. Hann varð einu sinni bikarmeistari og 8 sinnum Íslandsmeistari og náði því magnaða afreki að pirra hvern einasta andstæðing FH hvort sem var inn á vellinum eða uppi í stúku. Sennilega skilgreiningin á mest óþolandi mótherja sem nokkur leikmaður gat mætt en frábær náungi fyrir FH og einnig aðra eftir að hann lauk ferlinum.
10/1/20201 hour, 51 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Bjarni Guðjónsson

Bjarni Guðjóns er einn af þremur bestu miðjumönnum efstu deildar síðastliðin 15 ár. Á undan því var Bjarni atvinnumaður í Englandi, Þýskalandi og Belgíu, var góðvinur Temuri Ketsbaia sem gekk eftirminnilega berserksgang á St. James's Park, æfði með háöldruðum Taribo West og kynntist Vahid Hashemian í Bochum sem hefur ekki riðið neitt sérstaklega feitum hesti í Draumaliðinu hingað til. Bjarni er Skagamaður sem er einhvern veginn orðinn KRingur. Bjarni elskaði að spila með Mihajlo Biebercic sem kann segir mikla tilfinningaveru sem elskar að skora mörk en Bjarni er fyrst og fremst bara legend og stillti upp geggjuðu Draumaliði og rúllaði yfir skemmtileg móment frá ferlinum í mjög skemmtilegu spjalli. Njótiði vel.
9/23/20201 hour, 11 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

Gunnar Oddsson

Ef Gunnar Oddsson væri bandarískur íþróttamaður myndi hann bera gælunafnið Iron Man. Frá júlí 1990 til ágúst 2000 spilaði Gunnar alla deildarleiki sem í boði voru í efstu deild á Íslandi, 186 leiki talsins, en hann varð síðar leikjahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og er í dag í þriðja sæti á þeim lista. Hann er goðsögn í Keflavík og vel metinn hjá KR og Ólafsfirði en fyrst og síðast er hann einn albesti leikmaður sem efsta deild á Íslandi hefur séð en þess til vitnis má nefna að geitin úr röðum blaðamanna og höfundur íslenskrar knattspyrnu Víðir Sigurðsson valdi hann í besta lið síðustu fjögurra áratuga.
9/17/20201 hour, 16 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er ekkert eðlilega skemmtilegur FyrirgosEyjamaður sem á virkilega vanmetinn feril að baki. Hann vann bæði gull- og silfurskó í Allsvenskunni, spilaði í Bundesligunni, á kvarthundrað landsleiki og færði Eyjamönnum sinn fyrsta bikar í tæp 20 ár þegar hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku. Frábært Draumalið sem The Gun setti saman úr miklum fagmönnum, þrír Champions League finalists, einn merkilegasti karakter knattspyrnusögunnar og margir hæfileikaríkir skildir útundan.
9/9/20202 hours, 5 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Gary Martin

Gary John Martin er án nokkurs vafa mest ræddi leikmaður síðasta áratugs í efstu deild á Íslandi. Drengurinn frá Darlington hefur spilað með 5 félögum á Íslandi og einnig spilað í Englandi, Danmörku, Ungverjalandi, Noregi og Belgíu. Hann mætti í Draumaliðið og gaf okkur sitt teik á íslenska boltanum sem hann hefur gríðarlega gaman af, fór yfir erfiðustu andstæðingana, bestu leikina og valdi auðvitað Draumaliðið sitt.
9/1/20201 hour, 23 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

Atli Jóhannsson

Atli Jóhannsson er Eyjamaður sem spilaði einnig með KR og er goðsögn í Stjörnunni. Atli spilað í 15 ár á Íslandi, allt í efstu deild og var einn yngsti leikmaðurinn til að ná þeim áfanga að spila 200 leiki í efstu deild. Hann lagði skóna 33 ára gamall á hilluna vegna meiðsla en hafði fram að þeim tíma afrekað hluti sem aðra leikmenn getur aðeins dreymt um eins og að dekka Mateo Kovacic, fara taplaus í gegnum heilt tímabil og að æfa með Jóni Kára Eldon.
6/24/20201 hour, 40 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Indriði Sigurðsson

Eftir að hafa jafnað sig á því áfali að vera rekinn úr KR í 7. flokki lék Indriði Sigurðsson 65 landsleiki fyrir íslenska landsliðið og var í 15 ár í atvinnumennsku í Noregi og Belgíu. Hann var orðaður við Manchester United og fór á trial til Liverpool og PSV áður en hann skrifaði undir hjá Lilleström í Noregi eftir að hafa 17 ára gamall spilað ágætis hlutverk í frægu Íslandsmeistaraliði KR og átti síðar eftir að spila með belgíska stórliðinu Racing Genk, undir stjórn King Henning Berg hjá Lyn og að lokum í 6 ár í Íslendinganýlendunni Viking frá Stavanger en í millitíðinni missti hann t.d. af samningi hjá Southampton þar sem klúbburinn tók þá umdeildu ákvörðun að veðja á annan vinstri bakvörð. Hann spilaði með haug af stjörnum og leikmönnum sem meikuðu það og eru jafnvel ennþá í hæstu hæðum í heimsfótboltanum. Indriði mætti ferskur og sagði geggjaðar sögur á sama tíma og hann valdi Draumaliðið sitt frá ferlinum.
6/15/20201 hour, 30 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

Bjarni Þór Viðarsson

Bjarni Þór Viðarsson sat á bekknum í Premier League og var í fjögur ár hjá Everton áður en hann var á mála hjá Twente í Hollandi, liði sem varð Hollandsmeistari eftir að Bjarni hafði sett mark sitt á liðið og yfirgefið klúbbinn. Frá Hollandi tók Bjarni stökkið yfir í efstu deild Belgíu þar sem hann mætti tilvonandi leikmönnum belgísku gullkynslóðarinnar hverja helgi áður en hann kláraði ferilinn með danska smiðnum, Henrik "Tømrer" Pedersen, páfuglinum sjálfum frá Bolton Wanderes, í slöku liði Silkeborg í Danmörku. Bjarni á auk þess einhverja 60 leiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hann var fyrirliði íslensku gullkynslóðarinnar en í dag er hann mögulega frekar hluti af hinni týndu gullkynslóð sem Draumaliðið hefur veitt sérstaka eftirtekt. Bjarni er þó fyrst og síðast skemmtilegur og mikill toppmaður sem tók vel í þau endalausu name drop sem var hent í hann í þættinum.
6/8/20201 hour, 48 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Kristinn Tómasson

Kristinn Tómasson er markahæsti leikmaður Fylkis á Íslandsmóti en fyrsta markið skoraði hann einungis 17 gamall, algjörlega lygilegt mark í anda Dennis Bergkamp sem reyndist sigurmark Fylkis gegn FH og hrifsaði Íslandsmeistaratitilinn úr höndum FHinga. Árin á eftir raðaði Kristinn inn mörkunum og hélt alltaf tryggð við uppeldisklúbb sinn. Því er um að ræða enn eitt draumaliðið frá á a one club legend (mínus eitt season í Fram undir restina)og því kjörin hlustun fyrir alla Fylkismenn. Allez Oranje!
6/2/20201 hour, 41 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Steve Andri Geir Gunnarsson Dagskrá

Andri Geir Gunnarsson, annar af þáttastjórnendum Steve Dagskrá, veit allt um takkaskó auk þess að vera einn af dáðustu sonum ÍH. Hann hefur upplifað tímana tvenna, enda af týndu gullkynslóðinni auk þess sem hann söðlaði um á yngri árum og skipti úr uppeldisfélagi sínu Haukum yfir í stjörnumprýtt lið Breiðabliks í 3. flokki. Andri fór yfir bestu samherja sína, gleðistundirnar og sorgirnar, í almennu luppgjöri sínu við fótboltann og lífið hjá Draumaliðinu.
5/25/20201 hour, 11 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Kári Árnason

Kári Árnason teikaði gullkynslóðina tæplega þrítugur eftir slitróttan landsliðsferil og hefur átt stóran þátt í mesta blómaskeiði íslenska landsliðsins. Kári hefur þess utan átt virkilega skemmtilegan feril í atvinnumennsku þar sem hann hefur spilað í Skandinavíu, Skotlandi, ensku neðri deildunum, Kýpur og Tyrklandi. Kári er fullkominn viðmælandi fyrir Draumaliðið, einstaklega skemmtilegur og hreinskilinn og Draumaliðið hans var eftir því.
5/17/20201 hour, 36 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

Logi Ólafsson

Logi Ólafsson er einn af örfáum þjálfurum á Íslandi sem hefur orðið Íslandsmeistari með karlalið og kvennalið ásamt því að hafa þjálfað íslenska A landslið karla og kvenna. Logi er auðvitað einn fyndnasti maður landsins og sagði mér ekkert eðlilega fyndnar sögur í tæplega tvo klukkutíma frá þjálfaraferlinum og hann valdi byrjunarlið af bestu leikmönnum sem hann þjálfaði frá ferlinum, sitt Draumalið.
5/11/20201 hour, 52 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Prince Matilda Rajcomar - Dreamteam special

Prince Rajcomar kom til landsins í byrjun árs 2007, 21 árs unglingalandsliðsmaður frá Hollandi, og lék með Breiðablik í tvö ár áður en KR fékk hann til sín þar sem hann var hluti af The Quintet of Quality sóknarlínu KRinga sumarið 2009 áður en hann fór til ungverska efstu deildar liðsins Zalaegersegi (stafsetning pending). Eftir Prinsinn liggja ótrúlegar sögur eins og aðdáendur Draumaliðsins hafa heyrt í þáttunum en hvaða leikmenn heilluðu hann mest á Íslandi? Í sérstökum Draumaliðs special þætti hringdum við í Prince Rajcomar og fengum að heyra Draumalið hans frá þessum þremur tímabilum á Íslandi.
5/8/202035 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

Gunnar Örn Jónsson

Gunnar Örn Jónsson er Fjölnismaður sem vann alla titla sem í boði voru áður en hann skipti yfir í yngri flokka Breiðabliks og skaraði fram úr undir styrkri leiðsögn Salih Heimis Porca. Þaðan elti hann peninga og frægð hjá KR og var hluti af The Quintet of Quality eins og gárungar kölluðu 5 manna sóknarlínu KR árið 2009. Hann spilaði A-landsleik og varð Íslandsmeistari árið 2011 en færði sig þá yfir til Stjörnunnar og síðar Fylkis en lagði skóna óvænt á hilluna árið 2014, aðeins 29 ára gamall.
5/4/202059 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

Guðmundur Torfason

Guðmundur Torfason deilir markametinu í efstu deild, spilaði í tæpan áratug sem atvinnumaður í Evrópu og er meðal annars goðsögn hjá St. Mirren eftir að hafa lagt grunninn að einum stærsta sigri félagsins síðustu ár þegar liðið lagði stórlið Glasgow Celtic 0-3 á útivelli. Hér heima var Gummi hluti af því stórveldi sem Fram byggði á 9. áratugnum og varð Íslandsmeistari 1986 og bikarmeistari 1979, 1980 og 1985.
4/27/20201 hour, 35 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Hermann Hreiðarsson

Hermann Hreiðarsson er 8. leikjahæsti erlendi útileikmaður Premier League frá upphafi og þrátt fyrir að hafa fallið með nánast hverju einasta liði sem hann spilaði með er hann goðsögn á nánast öllum stöðum. Hann er eini íslenski leikmaðurinn til að sigra elstu og virtustu bikarkeppni í heimi og elskar ekkert meira en að taka góða Elvis eftirhermu, láta leikmenn heyra það og lemja Auðunn Blöndal.
4/23/20201 hour, 15 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

Ingólfur Veðurguð Þórarinsson

Ingó var á sínum tíma gríðarlega efnilegur unglingalandsliðsmaður áður en hann varð einn farsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Ingó var í yngri landsliðum með stjörnum á borð við Kjartani Henry og Ragga Sig en endaði knattspyrnuferil sinn sem markmaður og spilandi þjálfari hjá fallliði Hamars í Hveragerði. Í millitíðinni fór hann í gegnum mesta blómaskeið í sögu uppeldisfélags síns á Selfossi ásamt goðsagnakenndum leikmönnum sem rætt var um í þættinum og Draumalið Ingó valið.
4/1/20201 hour, 27 minutes, 1 second
Episode Artwork

Halldór Smári Sigurðsson

Halldór Smári Sigurðsson var langt frá því að vera besti leikmaðurinn í yngri flokkum Víkings og að eigin sögn lagði hann ekkert endilega inn the extra work, hann bara var þarna og mætti á æfingar. Í dag er hann 32 ára og ef allt er eðlilegt verður hann leikjahæsti leikmaður i sögu Víkings í sumar eða næsta sumar. Halli er stórskemmtilegur maður og sagði okkur frábærar sögur frá misgóðum tímum enda hefur það kostað blóð, svita og tár að vera Víkingur síðastliðinn ár en hann var heldur betur verðlaunaður síðasta sumar þegar hann varð bikarmeistari með uppeldisfélagi sínu. Ekki til betri maður til þess að velja besta lið Víkinga frá síðustu 15 árum.
3/25/20201 hour, 11 minutes, 1 second
Episode Artwork

Jón Kári Eldon

Jón Kári Eldon er farsæll grafískur hönnuður sem heldur úti skemmtilegum twitter reikningi í eigin nafni en er fyrst og síðast hluti af týndu gullkynslóð íslenskra knattspyrnumanna sem hafa staðið í skugganum af hinni raunverulegu gullkynslóð sem hefur leitt þjóðina á EM og HM. Jón Kári er einn af mönnunum á bakvið eitt ótrúlegasta ævintýri í sögu íslenskrar knattspyrnu þegar hann fór með firmaliði sínu KV alla leið upp í næstefstu deild á Íslandi. Jón Kári er grasrótin, Jón Kári er ég og þú, sál fótboltans er í húfi.
3/17/20201 hour, 15 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

Kristján Óli Sigurðsson

Kristján Óli Sigurðsson, Blönduósartryllirinn, kom í bæinn til að stunda nám í Verzlunarskólanum haustið 1996 og endaði sem verslunarprófshafi og stúdent frá MK og leikmaður í meistaraflokki Breiðabliks. Stjáni hefur þess utan spilað í hinum ýmsu bæjarfélögum út á landi, þ.e. heimahögunum á Blönduósi, Selfossi, Sandgerði og Ólafsvík, og hefur marga fjöruna sopið í boltanum. Stjáni er líka bara meistari og auðvitað Höfðinginn!
3/11/20201 hour, 17 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

Salih Heimir Porca

Salih Heimir Porca lenti á Íslandi 4. febrúar 1990 og hefur lifað í sátt og samlyndi við íslensku þjóðina frá þeim degi, ef undan eru skilin einhver atvik frá knattspyrnuvellinum. Hann spilaði með Selfossi, Val, Fylki, KR og Breiðablik hér á landi og var einn albesti leikmaður deildarinnar á 10. áratugnum en hann varð bikarmeistari með Val árið 1992 og tvívegis með KR, 1994 og 1995.
3/4/20201 hour, 21 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

Brynjar Björn Gunnarsson

Brynjar Björn Gunnarsson spilaði frá 1999 til 2013 á Englandi og vann sig upp úr League 1 í Premier League á þeim tíma. Hann spilaði með Stoke City, Nottingham Forest, Watford og Reading á þessu tímabili ásamt því að spila 71 landsleik fyrir Ísland. Þátturinn er í boði Lengjunnar og Session Craft Bar og einnig í samstarfi með ÓK Bón, SuitUp og BYKO
2/26/20201 hour, 13 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

Guðmann Þórisson

Guðmann Þórisson, eða Tuðmann eins og þjóðin kallar hann oft, var auðmýktin uppmáluð og lét tuðið eiga sig þegar hann mætti í Draumaliðið. Hann rúllaði yfir Draumaliðið sitt í þættinum og lagði ríka áherslu á að liðspartýin yrðu að vera góð þegar liðið myndi taka móralskan saman. Fórum líka yfir tíma hans í atvinnumennsku, af hverju hann hefur tekið FH framyfir Breiðablik tvívegis og tímana með Hjörvari og Höfðingjanum í Breiðablik 2005. PSA - það þarf mögulega eitthvað að skrúfa upp í hljóðinu í tækjunum sem þið eruð að nota til að hlusta, tæknimennirnir að skíta á sig.
2/19/20201 hour, 5 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Guðmundur Benediktsson

Gummi Ben er goðsögn hjá allri íslensku þjóðinni hvort sem er sem lýsari eða knattspyrnumaður. Hann var talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu á sínum tíma en varð að láta sér nægja að vera bara bestur á Íslandi en ekki bestur í heimi. Gummi spilaði með allflestum af bestu leikmönnum landsins og því var vandasamt verk að velja en hann mætti í stúdíóið með rifna blaðsíðu úr stílabók sem innihélt 67 nöfn. Góða skemmtun, allt saman í boði Session Craft Bar og Lengjunnar
2/12/20202 hours, 1 minute, 3 seconds
Episode Artwork

Arnar Bergmann Gunnlaugsson

Arnar Gunnlaugsson er heitasti þjálfari landsins í dag og ég ætla rétt að vona að flestir viti að um það leyti sem hann skrifaði undir tilvonandi Hollandsmeistaraliði Feyenoord var hann talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu. Arnar spilaði með Feyenoord, Sochaux, Nurnberg, Bolton, Leicester, Stoke og Dundee á atvinnumannaferlinum en á Íslandi spilaði hann með nánast öllum liðum landsins og lék við góðan orðstír til tæplega fertugs.
2/5/20201 hour, 16 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Jón Ragnar Jónsson

Jón Ragnar Jónsson er miklu meira en bara tónlistarmaður. Hann á tæpa 100 leiki í efstu deild og náði með miklum dugnaði að sanna fyrir áhugamönnum um íslenskan fótbolta að hann væri töluvert meira en bara einhver klappstýra og dr. pepper á hliðarlínunni hjá FH. Jón sagði okkur góðar sögur úr klefanum frá tíma í sínum í FH og gerði upp Draumaliðið sitt í stórkostlegu spjalli. Draumaliðið er í boði Session Craft Bar, langbesta pub bæjarins á Bankastræti 14, og Lengjunnar, íslenskt já takk. Iðnaðarmaður liðsins í boði BYKO var að sjálfsögðu valinn eins og venja er en þá útnefndi Jón einnig þann verst klædda sem hann deildi klefa með á ferlinum, í boði SuitUp Reykjavík.
1/29/20201 hour, 25 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Mikael Nikulásson

Mikael Nikulásson er einn skemmtilegasti maður landsins og hann sveik ekki Draumaliðið þegar hann setti saman byrjunarlið skipað af bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með á ferlinum. Stútfullur þáttum af alvöru sögum úr ástríðunni í neðri deildunum sem og mjög frambærilegum yngri flokki í Vesturbænum, allt saman á tandurhreinni íslensku eins og Mike er einum lagið. Ef menn hlusta á einhvern þátt í þessu podcasti þá er það þessi.
10/31/20191 hour, 12 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

Jóhannes Karl Guðjónsson

Jóhannes Karl Guðjónsson Aka Joey Gudjonsson átti frábæran feril sem atvinnumaður í Belgíu, Hollandi, Spáni og Englandi og spilaði undir mörgum heimsfrægum knattspyrnustjórum og öðrum mögnuðum karakterum. Hann gerði upp ferilinn og valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með.
10/23/201952 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

Daníel Laxdal

Beinskeytt, to the point og no nonsense. Það er þannig sem Daníel Laxdal rúllar inná vellinum og það var uppleggið hans sömuleiðis þegar hann mætti í Draumaliðið og valdi sitt draumalið skipað bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með. Besta byrjunarlið Stjörnunnar síðustu 15 árin.
10/9/201934 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

Sigurbjörn Örn Hreiðarsson

Sigurbjörn Hreiðarsson er sennilega ein mesta goðsögn í sögu Knattspyrnufélagsins Vals enda spilaði hann með liðinu í 19 ár og var fyrirliði bróðurpart þess tíma. Þrátt fyrir gylliboð annarra og miklu betri liða á erfiðum árum hélt hann alltaf tryggð við klúbbinn og var verðlaunaður vel á árunum 2005 til snemmsumars 2008 þegar Valur unnu flestöll mót sem í boði voru hvort sem var á veturna, vorin, sumrin eða haustin. Bjössi gerði upp 19 ára rússibanareið sem leikmaður á Hlíðarenda og stillti upp frábæru Draumaliði og sett met í shoutouti á leikmönnum á varamannabekkinn.
10/2/20191 hour, 10 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Gunnlaugur Jónsson

Gunnlaugur Jónsson kom ungur inn í gullaldarlið Skagans um miðjan 10. áratuginn og náði í skottið á þeirri ótrúlegu velgengni sem þar varði en gerði þetta síðan allt saman sjálfur sem fyrirliði Íslandsmeistara ÍA árið 2001 eftir ótrúlegan leik í lokaumferð. Gulli söðlaði einnig um á gamalsaldri og fór yfir til KR þar sem hann var strax gerður að fyrirliða en stemningin var súr í KR á þessum tíma og lítið um velgengni ef undan er þó skilinn bikarmeistartitill á hans síðasta tímabili. Mitt allra besta fólk á Akranesi einfaldlega verður að hlusta á þetta, helst koma þessu fyrir á sögusafni Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi ef það er kostur á því. Iðnaðarmaður liðsins kom ekki á óvart, Theódór Hervarsson the bad boy of weather var í öðru sæti.
9/26/20191 hour, 15 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

Emil Hallfreðsson

Emil Hallfreðsson á tæpa 150 leiki í Serie A, 70 landsleiki og hefur spilað með mörgum frábærum og athyglisverðum leikmönnum. Í rúmlega 70 mínútna spjalli fórum við yfir það helsta sem hefur drifið á daga hans á ferlinum og fórum yfir margar af þeim ótrúlegu kempum sem hann hefur deilt búningsklefa með á ferli sem spannar FH, Tottenham, Malmö, Lyn, Reggina, Barnsley, Hellas Verona, Udinese og Frosinone. Draumaliðið er sem fyrr í boði okkar manna í BYKO.
9/20/20191 hour, 12 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

Ólafur Ingi Skúlason

Árið 1993 varð Ólafur Ingi Skúlason markahæsti leikmaður Shellmótsins með 12 mörk en það er lægsti markafjöldi sem leikmaður hefur komist upp með í átt að gullskó á mótinu. Þetta varð því miður hápunktur Ólafs í markaskorun en þrátt fyrir það á hann virkilega vanmetinn feril í atvinnumennsku sem spannar 5 lönd í Evrópu (og Asíu landfræðilega séð) þar sem hann spilaði m.a. tvívegis í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með frábærum leikmönnum ásamt því að vera fastamaður í íslenska landsliðshópnum.
9/12/20191 hour, 32 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

Atli Viðar Björnsson

Atli Viðar Björnsson er markahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild og sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir eitt og sama félagið. Hann er geggjaður pundit, var stórkostlegur striker en umfram allt þvílíkur toppmaður. Nútímasaga FH í máli og engum myndum en ferill Atla í Hafnafirði spannar 17 ár, sem er einmitt hans gamla treyjunúmer. Að sjálfsögðu var valinn iðnaðarmaður liðsins í boði okkar besta styrktaraðila og vina í BYKO eins og vanalega. Draumaliðið er framleitt í samstarfi við BYKO og Viftuna.
9/5/20191 hour, 2 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

Hjörvar Hafliðason

Besta Dengsa eftirherma landsins, Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, mætti og fór yfir knattspyrnuferil sinn í rúmlega klukkutímaspjalli í boði Viftunnar og Byko, þá sérstaklega skrúfudeildar Byko út á Granda. Saga Hjörvars í boltanum með HK, Val og Breiðablik ásamt stuttum ævintýraferðum til Karlsruher og Stoke City hefur sjaldan litið dagsins ljós en hann var á sínum tíma einn efnilegasti markmaður landsins.
8/29/20191 hour, 7 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

Guðni Bergsson

Einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar, Guðni Bergsson, samþykkti ferðatilhögun Draumaliðsins og mætti í þáttinn og opnaði sig um bestu leikmenn sem hann hefur spilað með. Draumaliðið er í boði BYKO, sérstaklega BYKO út á Granda sem hefur aldrei brugðist liðsmönnum Draumaliðsins.
8/21/201946 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Sólmundur Hólm Sólmundarson

Saga Hólmarans í knattspyrnunni er saga brostinna drauma en einnig saga upprisu. Sóli sagði okkur frá áföllum sem hann lenti í snemma á ferlinum og hvernig hann reif sig upp í það að verða einn afkastamesti spilandi þjálfari í sögu árgangamóts Þróttar.
7/16/201952 minutes
Episode Artwork

Sigurvin Ólafsson

Sigurvin Ólafsson varð Íslandsmeistari 5 sinnum, einu sinni bikarmeistari og fór tvisvar upp úr 2. deildinni á mögnuðum ferli. Hann valdi Draumaliðið sitt sem að var mikill hausverkur eftir veru hjá m.a. gullaldarliðum ÍBV, KR og FH.
7/12/20191 hour, 10 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

Hallbera Guðný Gísladóttir

Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður Vals og íslenska landsliðsins og spekingur Pepsi Max markanna, kíkti til mín og fór yfir bestu leikmenn sem hún hefur spilað með á ferlinum.
7/3/201941 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

Guðmundur Steinn Hafsteinsson

Guðmundur Steinn Hafsteinsson, eiginlega ekki Gummi og því síður Steinn, mætti til okkar og gerði upp skemmtilegan feril sinn með vali á draumaliði frá tíma sínum með Val, Víkingi Ólafsvík, Fram, Notodden, ÍBV og Stjörnunni.
6/26/201953 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

Gunnleifur Vignir Gunnleifsson

Fyrrum andlit Nike í Keflavík og Innri-Njarðvík, Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, mætti og stillti upp draumaliði sínu eftir 25 ár af meistaraflokksfótbolta.
6/18/201945 minutes, 1 second
Episode Artwork

Albert Brynjar Ingason

Fyrrum Íslands- og Inkassomeistarinn Albert Brynjar Ingason mætti og stillti upp fyrir okkur strangheiðarlegu 4-3-3 leikkerfi skipað af bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með á ferlinum.
6/12/201959 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Arnþór Ingi Kristinsson

Þegar Draumaliðið var ennþá bara ómótuð hugmynd að þeim þætti sem hann er í dag og átti að heita eitthvað allt annað fékk ég góðvin minn Arnþór Inga Kristinsson miðjumann KR til þess að koma í prufuþátt og sjá hvort við værum með eitthvað í höndunum. Útkoman varð hrá útgáfa af því hlaðvarpi sem þjóðin hefur fengið í hendurnar á síðustu vikum. Saga Arnþórs í boltanum er saga átaka og ástríðu en fyrst og fremst mikillar seiglu og lífsvilja og því væri sorglegt að leyfa fólki ekki að heyra magnaðar sögur frá Grýluvellinum í Hveragerði, dirty trickum liðsfélaga hans úr neðri deildinni og sýn Arnþórs á bestu leikmenn sem hann hefur spilað með.
6/7/20191 hour, 1 minute, 15 seconds
Episode Artwork

Birkir Már Sævarsson

Næstlandsleikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins og hægri bakvörður neðsta liðs Pepsi deildarinnar valdi draumaliðið sitt.
6/5/201944 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Skúli Jón Friðgeirsson

Besti vinur Frikka Dórs og leikmaður KR, Skúli Jón Friðgeirsson, mætti í Draumaliðið og stillti upp byrjunarliði skipuðu af bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með.
5/28/201957 minutes, 57 seconds