Winamp Logo
Athafnafólk Cover
Athafnafólk Profile

Athafnafólk

Icelandic, Finance, 3 seasons, 53 episodes, 2 days 17 hours 9 minutes
About
Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við fólk sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. 
Episode Artwork

53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia

Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til notkunar í áburð og útblástursfrítt eldsneyti. Fyrirtækið er með þrjú útgefin einkaleyfi á efnahvötum og hefur safnað um 1,2 ma.kr. í styrki og 250 milljónir í fjárfestingu. Í dag telur teymið um 17 manns og stefnir með vöru á markað árið 2028. Guðbjörg hefur áður unnið hjá Promens plastfyrirtæki, í Svíþjóð, í verkefnum í verksmiðjunum þeirra vítt og breitt um Evrópu. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands, vann þá sjálfstætt og vann síðar sem breytingastjóri hjá Arion í Stafrænni Framtíð. Árið 2018 va
03/11/20231 hour 10 minutes 52 seconds
Episode Artwork

52. Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fv. forstjóri Icepharma

Viðmælandi þáttarins er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fyrrverandi forstjóri Icepharma. Icepharma er um 100 manna fyrirtæki sem selur, markaðssetur heilsueflandi vörur og þjónustu t.d. eins og lyf, lækninga- og hjúkravörur ásamt því að reka umboðið fyrir Nike á Íslandi. Margrét er fædd árið 1954 og er alin upp í miðbænum og Smáíbúðahverfinu. Hún gekk í Verslunarskólann og lauk Cand. Ocean gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og síðar Master í mannauðs- og markaðsfræði frá Copenhagen Business School. Margrét hefur komið víða við og unnið einnig sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi, stjórnandi hjá Q8 (Kuwait Petroleum International) og starfsþróunarstjóri hjá Statoil í Danmörku. Margrét situr í stjórn Eimskipa, Festis og Heklu og hefur áður setið í stjórnum Krónunnar, N1, Isavia og Reiknistofu bankanna.  Þessi þáttur er kostaður af Arion banka, Krónunni og
30/10/20231 hour 13 minutes 37 seconds
Episode Artwork

51. Helga Árnadóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Tulipop

Viðmælandi þáttarins er Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop.  Tulipop er íslenskur ævintýraheimur fyrir börn sem hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir. Helga er fædd árið 1979 og ólst upp í Noregi, bjó svo um nokkurra ára skeið á Selfossi og flutti svo í Háaleitishverfið í Reykjavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk BS prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Helga vann sem viðskiptastjóri og markaðsstjóri í hugbúnaðarbransanum á Íslandi en fluttist svo búferlum til London þar sem hún lauk MBA námi frá London Business School og vann þar einnig í stefnumótun og markaðsmálum fyrir American Express. Helga flutti síðan til Íslands árið 2009 eftir að hafa lokið MBA náminu og hóf þá störf í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og starfaði þar þar til hún stofnaði fyrirtækið Tulipop árið 2020. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
02/10/20231 hour 16 minutes 55 seconds
Episode Artwork

50. Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection

Viðmælandi þáttarins er Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection og fyrrum forstjóri Arctic Adventures. Stellar Collection er ný samstæða ferðaþjónustufyrirtækja í Alaska sem hann fer fyrir. Styrmir er fæddur árið 1970 og alinn upp í Seljahverfinu.  Hann gekk í Menntaskóllann við Sund og fór þaðan í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og kláraði Master í fjármálahagfræði frá Stirling University í Skotlandi. Styrmir hefur komið víða við og m.a. starfað sem forstjóri MP Banka, Atorku fjárfestingafélags og Títans fjárfestingafélags og einnig sem framkvæmdasjóri eigin viðskipta hjá Straumi og forstöðumaður sjóðastýringar hjá Landsbréfum. Styrmir hefur einnig setið í hinum ýmsum stjórnum. Þátturinn er kostaður af Icelandair, Arion og Krónunni.
29/09/20231 hour 12 minutes 44 seconds
Episode Artwork

49. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair

Viðmælandi þáttarins er Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Tómas er alinn upp í Reykjavík með stuttri viðkomu í Kiel í Þýskalandi. Hann gekk í MH og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Hann hefur einnig mastersgráðu í stjórnun aðfangakeðja með áherslu á flugfélög frá MIT í Boston ásamt MBA gráðu frá sama skóla. Tómas hefur tekið að sér ýmis störf hjá Icelandair í gegnum tíðina, allt frá forritun og verkefnastjórnun, forstöðumennsku tekjustýringar yfir í framkvæmdastjórn ýmissa sviða síðustu fimm árin á tímum mikils umróts í flugiðnaðinum. Tómas hefur einnig unnið hjá ráðgjafafyrirtækinu Bain & Company, sem forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka, framkvæmdastjóri hjá WOW air og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Arion banka og Icelandair.
20/09/202358 minutes 43 seconds
Episode Artwork

48. Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi

Viðmælandi þáttarins er Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir er fæddur árið 1973 og er alinn upp á Selfossi. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands, R.A. Long High School og kláraði síðan BA próf í sálfræði og Master í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Ægir starfaði um árabil hjá Capacent, þekkingar- og ráðgjafyrirtæki, og vann þar sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs. Hann starfaði síðan sem mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála áður en hann tók við forstjórastólnum hjá Advania á Íslandi árið 2015. Advania er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni og tilheyrir Advania samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu. Mikill vöxtur hefur verið hjá Advania á síðustu árum og í dag starfa þar um 4500 manns, þar af um 630 manns á Íslandi en sjóður á vegum Goldman Sachs keypti meirihluta í Advania árið 2021. Ægir hefur einnig setið í stjórn V
11/09/20231 hour 18 minutes 20 seconds
Episode Artwork

47. Einar Stefánsson, stofnandi Oculis

Viðmælandi þáttarins er Einar Stefánsson, meðstofnandi Oculis og prófessor í augnlækningum frá Háskóla Íslands. Oculis er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar augnlyf en fyrirtækið var skráð á Nasdaq kauphöllina í mars árið 2023. Oculis hefur m.a. þróað lyf sem byggir á einkaleyfavarinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Hjá Oculis starfa um 30 starfsmenn í dag og er fyrirtækið metið á um 40 ma.kr. Einar er fæddur árið 1952 og alinn upp í Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði læknisfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með Doktorsgráðu í lífeðlisfræði frá Duke háskóla í Bandaríkjunum. Einar vann einnig hjá Duke háskóla sem vísindamaður og lektor í augnlækningum í 10 ár þangað hann kom aftur til Íslands og tók við prófessorstöðu við Háskóla Íslands og stofnaði síðar Oculis árið 2003.  Þessi þáttur er í boði Krónunnar,
25/07/20231 hour 7 minutes 32 seconds
Episode Artwork

46. Björn Hólmþórsson, stofnandi Five Degrees sem seldi fyrirtækið sitt til Topicus

Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við gerð eignastýringakerfis og lánakerfis. Síðar fór hann til Englands og vann við hugbúnaðargerð hjá Raft International en þaðan flutti hann til Lúxemborg árið 2003 þar sem hann byrjaði í hugbúnaðargerð og varð síðar framkvæmdastjóri tæknimála (CIO) hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Björn stofnaði fjártæknifyrirtækið Five Degrees árið 2009 sem er með skrifstofur á Íslandi, Portúgal og í Hollandi og þróar hugbúnaðarlausnir í skýið fyrir banka víðsvegar um heiminn. Árið 2018 keypti Five Degrees, íslen
11/07/20231 hour 8 minutes 16 seconds
Episode Artwork

45. Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone

Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingar og breytingastjórnun. Sesselía bjó í Svíþjóð í yfir 10 ár þar sem að hún stofnaði og rak fyrirtækið Red Apple Apartments. Eftir að Sesselía flutti aftur heim til Íslands hefur hún starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania, framkvæmdastjóri Íslandspósts og sem forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi og setið í hinum ýmsu stjórnum m.a. fyrir Samtök verslunar og þjónustu, hugbúnaðarfyrirtækið AGR og Sýn.  Þessi þátt
30/06/20231 hour 27 minutes 56 seconds
Episode Artwork

44. Ingvar Helgason, stofnandi og forstjóri Vitrolabs Inc.

Viðmælandi þáttarins er Ingvar Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins VitroLabs Inc. Vitrolabs er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar leður úr stofnfrumum dýra. Fyrirtækið er staðsett úti í Bandaríkjunum og hefur safnað yfir $46m frá m.a. Khosla Venures og Leanordo Dicaprio. Ingvar er fæddur árið 1980 og hóf ungur störf í tískuiðnaðinum. Eftir að hann flutti til London árið 2001 hóf hann störf hjá tískuhönnuðinum Marjan Pejoski sem er frægastur fyrir svanakjól Bjarkar og stofnaði síðan tískufyrirtækið Ostwald Helgason í Bretlandi sem hannaði og framleiddi tískuföt sem seld voru víða um heim. Eftir lokun fatamerkisins stofnaði Ingvar Vitrolabs Inc. árið 2016 sem framleiðir leður úr stofnfrumum dýra á umhverfisvænan hátt sem verður m.a. selt til tísku- og bílaframleiðanda. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
28/06/20231 hour 43 minutes 33 seconds
Episode Artwork

43. Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Sensa

Viðmælandi þáttarins er Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og forstjóri Sensa. Valgerður er fædd árið 1963 og alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Melaskóla og Hagaskóla þangað til leið hennar lá í Menntaskólann í Reykjavík. Hún kláraði síðan BS próf í rafmagnsverkfræðifræði frá Háskóla íslands og MBA frá University of Miami. Valgerður hefur komið víða við og m.a. unnið sem sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, deildarstjóri rafmagnsdeilar hjá Jóhann Ólafsson & Co. og framkvæmdastjóri hjá Tæknivali þangað til hún stofnaði svo Sensa árið 2002. Sensa er 140 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni, m.a. lausnir í innviðum og rekstri upplýsingatæknikerfa. Sensa var keypt af Símanum árið 2007 og tilheyrði Símanum þangað til 2020 þegar norska upplýsingafyrirækið, Crayon, keypti Sensa.  Valgerður hefur setið í hinum ýmsu stjórnum t.d. eins og hjá Ís
26/06/20231 hour 19 minutes 46 seconds
Episode Artwork

42. Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical

Viðmælandi þáttarins er Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical en félagið framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Pétur er fæddur árið 1966 og er alinn upp í Kópavoginum. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lauk prófi frá Kennaraháskólanum og nam síðar mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Pétur hefur komið víða við í atvinnulífinu. Hann var einn af stjórnendum Samskipa við stofunun félagsins 1991, stýrði innflutningsdeild og uppbyggingu á vöruhótel og drefingamiðstöð Samskipa. Hann var síðar framkvæmdastjóri yfir starfsemi í SÍF í Noregi (Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda) og síðar sölustjóri hjá íslenska lækningatækjaframleiðandanum Flögu. Frá Flögu fór Pétur til Fons eignarhaldsfélags og fór þar fyrir fjárfestingum Fons á breskum smásölumarkaði og í flugrekstri. <
23/06/20231 hour 25 minutes 5 seconds