Winamp Logo
Ástríðan - Hetjur neðri deildanna Cover
Ástríðan - Hetjur neðri deildanna Profile

Ástríðan - Hetjur neðri deildanna

Icelandic, Sports, 1 season, 10 episodes, 16 hours, 7 minutes
About
Þáttastjórnandi Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason, færir aðeins út kvíarnar og fær til sín í spjall hetjur úr neðri deildum karla í fótbolta sem hafa gert margt en fáir þekkja almennilega. Allir vita hverjir þeir eru en fáir þekkja þá og þeirra athyglisverðu ferla.
Episode Artwork

Kristinn Aron Hjartarson - Kiddi Hjartar

Viðmælandi lokaþáttarins í fyrstu seríu er minna þekktur en margir aðrir í fyrstu seríu. Þeir sem hafa þó verið í kringum neðri deildirnar síðustu 15 árin vita nákvæmlega hver maðurinn er enda alvöru þungavigtarmaður. Hann hefur varla tekið þátt í riðlakeppni neðri deilda án þess að fara í úrslitakeppni og í flest skiptin farið upp um deild, sjaldan með sama liðinu. Hann hefur spilað 107 leiki sem miðvörður eða framherji og skorað 27 mörk í Ástríðunni. Boli Léttöl - Lífsalt - Waterclouds - Jako Sport Ég, Sverrir Mar Smárason, þakka kærlega fyrir góðar móttökur á þessari fyrstu seríu. Ég lofa því að næsta sería er væntanleg í haust en þangað til hvet ég alla áhugasama um að fylgjast með Ástríðunni í sumar. Takk fyrir mig í bili.
6/12/20232 hours, 42 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

Alexander Aron Davorsson - Flugan

Viðmælandi minn í dag er öllum kunnugur. Mosfellingur með 320 leiki og 107 mörk skráð á KSÍ, þarf af 174 leikir og 48 mörk í Ástríðunni. Hann er maður sem allir elska að spila með og hata að spila gegn. Þjálfar í dag mfl kvk hjá aftureldingu. Alexander Aron Davorsson.  Lífsalt - Boli Léttöl - Waterclouds.is - Jako Sport
6/5/20231 hour, 39 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

Brynjar Árnason - Útibússtjórinn

Viðmælandi dagsins er Bæjarhetja á Egilstöðum. Stýrir í dag liði bæjarins ásamt því að reka bankakerfið á austurlandi. 31 mark í 211 ástríðuleikjum, nánast allt fyrir Hött. Á meðan liðið fór upp og niður um deildir, leikmenn komu og fóru þá var alltaf ein festa og það var Brynjar Árnason.
5/30/20231 hour, 28 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

Jón Aðalsteinn Kristjánsson - Nonni Coach

Nonna þekkja flestir sem hafa verið viðloðnir neðri deildir á íslandi á þessari öld enda hefur hann þjálfað mörg lið í öllum deildum, lið eins og ÍH, KF, Augnablik, Kára, Elliða, Val og Fylki. 177 þjálfaðir leikir í ástríðunni, 34 í 4.deild og 28 í bestu deild kvenna.
5/22/20231 hour, 43 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Björgvin Stefán Pétursson - Óþolandi andstæðingur

Björgvin Stefán Pétursson er nafn sem allir Ástríðu aðdáendur kannast við. Mikill drifkraftur í uppgangi Leiknis Fáskrúðsfirði á undanförnum árum en spilaði sömuleiðis með ÍR áður en hann fór þangað sem hann er núna, spilandi aðstoðarþjálfari Hattar/Hugins. Minnst sem óþolandi andstæðingi og þykir það ljúft.
5/15/20231 hour, 34 minutes, 1 second
Episode Artwork

Einar Már Þórisson - PR1

Boli - Jako - Waterclouds - Lífsalt Einar Már Þórisson situr í dag í 2.sæti yfir leikjahæsta, markahæsta og fjölda gulra spjalda fyrir KV eftir langan feril. Einar Már stoppaði við hjá Hamar og Fram sömuleiðis og er af mörgum talinn einn besti leikmaður sem aldrei spilaði leik í efstu deild.
5/8/20231 hour, 10 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

Ingimar Helgi Finnsson - Litla Flugvélin

Ingimar Helgi er af suðurlandinu og einkennist hans ferill af því. Litlu Flugvélina þekkja margir hlaðvarpshlustendur en fáir þekkja manninn almennilega. Í þessum þætti breytist það.
5/2/20231 hour, 34 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Víglundur Páll Einarsson - Verkstjórinn

Víglundur Verkstjóri er nafn sem er mörgum kunnugt. Hann á að baki langan feril með liðum eins og Hetti og Þór en lengst af hefur hann verið stór partur af starfi Einherja á Vopnafirði, ýmist sem leikmaður, þjálfari eða stjórnarmaður. Ástríðan fyrir leiknum lekur af Víglundi og sögurnar fylgja með.
4/24/20231 hour, 39 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

Hrafnkell Freyr Ágústsson - Málkell

Hrafnkell Freyr eða Keli hefur gert sér gott orð í hlaðvarpsheiminum á undanförnum árum, aðallega vegna mikillar þekkingar á leikmönnum á Íslandi sem hann þylur upp vikulega í Dr. Football. Hann er hér mættur til þess að tala loksins um sjálfan sig enda á hann ansi merkilegan feril sjálfur í Ástríðunni. Stef þáttarins samdi Brynjar Már Björnsson, leikmaður KFG.
4/17/20231 hour, 26 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

Páll Sindri Einarsson - PalliBóndi

PalliBóndi er einn allra besti Counterstrike spilari landsins sem lengi hefur gert garðinn frægan í tölvuleikjaheiminum á Íslandi en færri vita það að hann á ansi merkilegan knattspyrnuferil. Hann hefur spilað með mörgum liðum undir mörgum goðsagnakenndum þjálfurum.   Stef þáttarins samdi Brynjar Már Björnsson, leikmaður KFG.
4/13/20231 hour, 9 minutes, 23 seconds