Winamp Logo
Athafnafólk Cover
Athafnafólk Profile

Athafnafólk

Icelandic, Finance, 3 seasons, 63 episodes, 3 days, 6 hours, 55 minutes
About
Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við fólk sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. 
Episode Artwork

63. Ægir Þorsteinsson, meðstofnandi Hopp og framkvæmdastjóri Aranja

Viðmælandi þáttarins er Ægir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Aranja og einn stofnanda Hopp. Ægir er fæddur árið 1985 og ólst upp á Seltjarnarnesi og á Landsbyggðinni. Hann flutti að heiman eftir 10. bekk til að fara á tölvubrautina í Iðnskólanum og hélt áfram í Háskólann í Reykjavík þar sem hann kláraði B.S. í tölvunarfræði. Ægir vann að netbönkum Landsbankans eftir útskrift og síðan hjá Red Gate í Bretlandi áður en hann flutti aftur til Íslands og stofnaði Aranja árið 2014 með Eiríki Heiðari Nilssyni. Aranja er stafræn stofa og venture studio sem sérhæfir sig í stafrænum vörum og hefur Ægir verið framkvæmdastjóri þar í 10 ár. Ægir er einnig meðstofnandi Hopp, sem er samgöngulausn fyrir borgir, einna þekktust fyrir rafskúturnar og Hopp farsímalausnina, en fyrirtækið byrjaði sem verkefni innan Aranja árið 2019. Hopp hefur sótt sér fjármagn frá íslenskum og erlendum fjárfestum og eru rafskúturnar og hugbúnaðarlausnin nú í boði í nokkrum löndum. Ægir skipuleggur einnig meistaranám í framendaforritun í háskóla í Barcelona þar sem hann kennir einnig einstaka áfanga. Þátturinn er kostaður af Arion.
4/29/20241 hour, 16 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

62. Halla Tómasdóttir, frumkvöðull og forstjóri B-Team

Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir, forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University of Montogomery og með MBA gráðu frá Thunderbird School of Global Management í Bandaríkjunum. Hún stundaði einnig um nokkurra ára skeið nám til doktorsgráðu við Cranfield University í Bretlandi þar sem hún lagði stund á rannsóknir í leiðtogafræði. Halla hóf sinn feril hjá stórfyrirtækjunum Mars og Pepsi Cola þar sem hún vann í mannauðsmálum. Eftir að hún kom aftur til Íslands tók Halla tók virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem hún leiddi meðal annars fyrstu ár Opna Háskólans og verkefnið, Auður í krafti kvenna, ásamt því að vera ein af stofnendum Þjóðfundsins árið 2009. Hún gegndi fyrst kvenna framkvæmdastjórastöðu Viðskiptaráðs á árunum 2006-7, og var ein af stofnendum Auðar Capital, fyrsta fjármálafyrirtæki í forystu kvenna sem lagði áherslu á mannleg gildi og ábyrgð í fjárfestingum. Halla hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og er vinsæll fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi ásamt því að hafa gefið út bókina, Hugrekki til að hafa áhrif, árið 2023. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Icelandair og Arion banka.
3/26/20241 hour, 17 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

61. Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs CRI

Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hef­ur þróað leiðandi tækni­lausn á heimsvísu sem ger­ir viðskipta­vin­um þeirra kleift að fram­leiða met­anól á um­hverf­i­s­væn­an hátt úr kolt­ví­sýr­ingi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem græn­an orku­gjafa eða í efna­vör­ur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu manns hjá fyrirtækinu en nýir fjárfestar lögðu félaginu til $30m árið 2023 til að fjármagna vöxt þess. Björk er fædd árið 1983 og ólst upp í 104 Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Björk hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri og meðeigandi Reykjavík Backpackers, rekstrarstjóri Bus Hostel Reykjavík og Reykjavík Terminal og stofnandi og framkvæmdastjóri Made in Mountains. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion.
2/26/20241 hour, 26 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

60. Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Öldu

Viðmælandi þáttarins er Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu. Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu með örfræðslu, inngildingarkönnun, aðgerðaráætlun og mælaborði. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og var í lok þess árs valinn á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem bjóða upp á mælikvarða og markmiðasetningu í fjölbreytileika og inngildingu . Þórey var áður meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Capacent og vann m.a. við ráðgjöf í stjórnun og stefnumótun en þar leiddi hún mörg helstu fyrirtæki og stofnanir á Íslandi í gegnum verkefnið Jafnréttisvísi. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra,  framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Hún hefur tekið þátt í margs konar félagsstörfum og stofnaði m.a. V-daginn, sat í stjórn UN Women, íslenskri landsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, í varastjórn Jafnréttissjóðs og í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Hún stofnaði einnig umboðsskrifstofuna Eskimo Models og Ólöfu ríku, fyrirtæki sem framleiddi hönnunarleikföng og barnabækur. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
2/21/20241 hour, 27 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

59. Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri Good Good

Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson, meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og Master gráðu í Upplifunarhagkerfinu (e. Experience Economy) frá Háskólanum í Árósum. Garðar var áður meðstofnandi og framkvæmdastjóri saltframleiðslufyrirtækisins Norður Salt og meðstofnandi Saltverks Reykjaness ehf. Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
2/4/20241 hour, 20 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

58. Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns

Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, sérfræðingur í eignastýringu hjá Kviku og forstöðumaður hjá GAMMA,  þangað til hann tók við forstjórastarfi Kaldalóns. Þátturinn er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
1/31/20241 hour, 14 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

57. Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fv. forstjóri Dominos

Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino’s. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino’s á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann sat einnig í stjórn félagsins. Fyrirtækið framleiðir og dreifir aukahluti fyrir farsíma.  Birgir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Cintamani og fjárfest og setið í ýmsum stjórnum m.a. sem stjórnarformaður Billboard/Dengsa/BBI, auglýsingafyrirtækis, sem var selt til Símans núna í janúar 2024. Hann hefur einnig setið í stjórnum Domino’s í Noregi, veitingastaðarins Joe & the Juice, afþreyingarfyrirtæksins Lava Show, tæknifyrirtækjanna Andes og Prógramm og leitarsjóðsins Leitar Capital Partners. Ásamt því að taka þátt í fasteignamarkaðnum í gegnum EB Invest.   Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
1/30/20241 hour, 26 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

56. Jón Björnsson, forstjóri Origo

Viðmælandi þáttarins er Jón Björnsson, forstjóri Origo. Origo er samstæða þjónustufyrirtækja í upplýsingatækni með um 500 starfsmenn og býður fyrirtækið upp á þjónustu við rekstur og innviði, hugbúnað og notendabúnað. Jón er fæddur árið 1968 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og er lauk síðan B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Rider University í New Jersey. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Festi og Krónunnar frá 2014 en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Magasin du Nord og Högum frá 2002. Jón situr m.a. í stjórn netverslunarinnar Boozt.com, Dropp og Brauð & Co. Þátturinn er í boði Arion, Krónunnar og Icelandair.
12/15/20231 hour, 31 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

55. Þorsteinn Baldur Friðriksson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Rocky Road

Viðmælandi þáttarins er Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastóri og meðstofnandi leikjafyrirtækisins Rocky Road en fyrirtækið þróar nú nýjan samfélagsleikjamiðil fyrir snjallsíma. Fyrirtækið hefur nú safnað um samtals 700 milljónum kr. frá innlendum og erlendum fjárfestum, þ.á.m. íslenska vísissjóðnum Crowberry Capital, Luminar Ventures og Sisu Ventures. Þorsteinn er fæddur árið 1979 og ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og síðar MBA gráðu frá Oxford háskóla í Englandi. Þorsteinn stofnaði leikjafyrirtækið Plain Vanilla árið 2010 sem gaf m.a. út vinsæla spurningaleikinn Quizup sem fór sigurför um heiminn og safnaði í um 7 ma. kr. frá erlendum fjárfestum þ.á.m. frá Sequoia fjárfestingasjóði. Fyrirtækið var síðan selt til GluMobile árið 2016. Þorsteinn stofnaði einnig leikjafyrirtækið Teatime Games, sem bjó til farsímaleiki sem nýttu nýja tækni til að gera leiki persónulegri með myndspjalli og gáfu þá m.a. út spurningaleikinn Trivia Royal. Þorsteinn vann áður í sölu- og markaðsmálum hjá fjarskiptafyrirtækinu Hive, Industria, Vodafone, TM og BT. Þorsteinn hefur setið í stjórn Icelandic Startups (Klak) og í stjórn hugbúnaðarfyrirtækjanna Oz og Sling.  Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
12/14/20231 hour, 51 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

54. Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion

Viðmælandi þáttarins er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion. Iða Brá er fædd 1976 og er alin upp í Vestmanneyjum, hún gekk í grunnskólann þar og stundaði síðan nám við Verzlunarskólann áður en hún útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Hollandi. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 og hefur gengt ýmsum ýmsum störfum innan bankans, síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða Brá hefur setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóði, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda. Iða Brá er einnig varaformaður stjórnar Varðar, vátryggingafélags.
12/13/202351 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia

Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til notkunar í áburð og útblástursfrítt eldsneyti. Fyrirtækið er með þrjú útgefin einkaleyfi á efnahvötum og hefur safnað um 1,2 ma.kr. í styrki og 250 milljónir í fjárfestingu. Í dag telur teymið um 17 manns og stefnir með vöru á markað árið 2028. Guðbjörg hefur áður unnið hjá Promens plastfyrirtæki, í Svíþjóð, í verkefnum í verksmiðjunum þeirra vítt og breitt um Evrópu. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands, vann þá sjálfstætt og vann síðar sem breytingastjóri hjá Arion í Stafrænni Framtíð. Árið 2018 var Guðbjörg ráðin inn sem fyrsti starfsmaður Atmonia og tók síðan við sem forstjóri þar árið 2019. Guðbjörg er stjórnarmaður í Samtökum Sprotafyrirtækja og í stjórn Samtaka Vetnis- og rafeldisneytisfyrirtækja.  Þessi þáttur er kostaður af Icelandair, Krónunni og Arion banka.
11/3/20231 hour, 10 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

52. Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fv. forstjóri Icepharma

Viðmælandi þáttarins er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fyrrverandi forstjóri Icepharma. Icepharma er um 100 manna fyrirtæki sem selur, markaðssetur heilsueflandi vörur og þjónustu t.d. eins og lyf, lækninga- og hjúkravörur ásamt því að reka umboðið fyrir Nike á Íslandi. Margrét er fædd árið 1954 og er alin upp í miðbænum og Smáíbúðahverfinu. Hún gekk í Verslunarskólann og lauk Cand. Ocean gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og síðar Master í mannauðs- og markaðsfræði frá Copenhagen Business School. Margrét hefur komið víða við og unnið einnig sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi, stjórnandi hjá Q8 (Kuwait Petroleum International) og starfsþróunarstjóri hjá Statoil í Danmörku. Margrét situr í stjórn Eimskipa, Festis og Heklu og hefur áður setið í stjórnum Krónunnar, N1, Isavia og Reiknistofu bankanna.  Þessi þáttur er kostaður af Arion banka, Krónunni og Icelandair.
10/30/20231 hour, 13 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

51. Helga Árnadóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Tulipop

Viðmælandi þáttarins er Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop.  Tulipop er íslenskur ævintýraheimur fyrir börn sem hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir. Helga er fædd árið 1979 og ólst upp í Noregi, bjó svo um nokkurra ára skeið á Selfossi og flutti svo í Háaleitishverfið í Reykjavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk BS prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Helga vann sem viðskiptastjóri og markaðsstjóri í hugbúnaðarbransanum á Íslandi en fluttist svo búferlum til London þar sem hún lauk MBA námi frá London Business School og vann þar einnig í stefnumótun og markaðsmálum fyrir American Express. Helga flutti síðan til Íslands árið 2009 eftir að hafa lokið MBA náminu og hóf þá störf í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og starfaði þar þar til hún stofnaði fyrirtækið Tulipop árið 2020. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
10/2/20231 hour, 16 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

50. Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection

Viðmælandi þáttarins er Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection og fyrrum forstjóri Arctic Adventures. Stellar Collection er ný samstæða ferðaþjónustufyrirtækja í Alaska sem hann fer fyrir. Styrmir er fæddur árið 1970 og alinn upp í Seljahverfinu.  Hann gekk í Menntaskóllann við Sund og fór þaðan í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og kláraði Master í fjármálahagfræði frá Stirling University í Skotlandi. Styrmir hefur komið víða við og m.a. starfað sem forstjóri MP Banka, Atorku fjárfestingafélags og Títans fjárfestingafélags og einnig sem framkvæmdasjóri eigin viðskipta hjá Straumi og forstöðumaður sjóðastýringar hjá Landsbréfum. Styrmir hefur einnig setið í hinum ýmsum stjórnum. Þátturinn er kostaður af Icelandair, Arion og Krónunni.
9/29/20231 hour, 12 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

49. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair

Viðmælandi þáttarins er Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Tómas er alinn upp í Reykjavík með stuttri viðkomu í Kiel í Þýskalandi. Hann gekk í MH og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Hann hefur einnig mastersgráðu í stjórnun aðfangakeðja með áherslu á flugfélög frá MIT í Boston ásamt MBA gráðu frá sama skóla. Tómas hefur tekið að sér ýmis störf hjá Icelandair í gegnum tíðina, allt frá forritun og verkefnastjórnun, forstöðumennsku tekjustýringar yfir í framkvæmdastjórn ýmissa sviða síðustu fimm árin á tímum mikils umróts í flugiðnaðinum. Tómas hefur einnig unnið hjá ráðgjafafyrirtækinu Bain & Company, sem forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka, framkvæmdastjóri hjá WOW air og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Arion banka og Icelandair.
9/20/202358 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

48. Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi

Viðmælandi þáttarins er Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir er fæddur árið 1973 og er alinn upp á Selfossi. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands, R.A. Long High School og kláraði síðan BA próf í sálfræði og Master í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Ægir starfaði um árabil hjá Capacent, þekkingar- og ráðgjafyrirtæki, og vann þar sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs. Hann starfaði síðan sem mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála áður en hann tók við forstjórastólnum hjá Advania á Íslandi árið 2015. Advania er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni og tilheyrir Advania samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu. Mikill vöxtur hefur verið hjá Advania á síðustu árum og í dag starfa þar um 4500 manns, þar af um 630 manns á Íslandi en sjóður á vegum Goldman Sachs keypti meirihluta í Advania árið 2021. Ægir hefur einnig setið í stjórn Viðskiptaráðs og Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, auk nokkurra dótturfélaga Advania. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
9/11/20231 hour, 18 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

47. Einar Stefánsson, stofnandi Oculis

Viðmælandi þáttarins er Einar Stefánsson, meðstofnandi Oculis og prófessor í augnlækningum frá Háskóla Íslands. Oculis er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar augnlyf en fyrirtækið var skráð á Nasdaq kauphöllina í mars árið 2023. Oculis hefur m.a. þróað lyf sem byggir á einkaleyfavarinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Hjá Oculis starfa um 30 starfsmenn í dag og er fyrirtækið metið á um 40 ma.kr. Einar er fæddur árið 1952 og alinn upp í Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði læknisfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með Doktorsgráðu í lífeðlisfræði frá Duke háskóla í Bandaríkjunum. Einar vann einnig hjá Duke háskóla sem vísindamaður og lektor í augnlækningum í 10 ár þangað hann kom aftur til Íslands og tók við prófessorstöðu við Háskóla Íslands og stofnaði síðar Oculis árið 2003.  Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
7/25/20231 hour, 7 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

46. Björn Hólmþórsson, stofnandi Five Degrees sem seldi fyrirtækið sitt til Topicus

Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við gerð eignastýringakerfis og lánakerfis. Síðar fór hann til Englands og vann við hugbúnaðargerð hjá Raft International en þaðan flutti hann til Lúxemborg árið 2003 þar sem hann byrjaði í hugbúnaðargerð og varð síðar framkvæmdastjóri tæknimála (CIO) hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Björn stofnaði fjártæknifyrirtækið Five Degrees árið 2009 sem er með skrifstofur á Íslandi, Portúgal og í Hollandi og þróar hugbúnaðarlausnir í skýið fyrir banka víðsvegar um heiminn. Árið 2018 keypti Five Degrees, íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Libra og er þ.a.l. með mikil umsvif á Íslandi. Five Degrees hefur safnað um 4,5 ma. kr. frá erlendum fjárfestum til að fjármagna vöxt félagsins á síðustu árum. Five Degrees var selt til alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækisins Topicus nú í mars 2023. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Icelandair og Arion banka.
7/11/20231 hour, 8 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

45. Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone

Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingar og breytingastjórnun. Sesselía bjó í Svíþjóð í yfir 10 ár þar sem að hún stofnaði og rak fyrirtækið Red Apple Apartments. Eftir að Sesselía flutti aftur heim til Íslands hefur hún starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania, framkvæmdastjóri Íslandspósts og sem forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi og setið í hinum ýmsu stjórnum m.a. fyrir Samtök verslunar og þjónustu, hugbúnaðarfyrirtækið AGR og Sýn.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion banka.
6/30/20231 hour, 27 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

44. Ingvar Helgason, stofnandi og forstjóri Vitrolabs Inc.

Viðmælandi þáttarins er Ingvar Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins VitroLabs Inc. Vitrolabs er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar leður úr stofnfrumum dýra. Fyrirtækið er staðsett úti í Bandaríkjunum og hefur safnað yfir $46m frá m.a. Khosla Venures og Leanordo Dicaprio. Ingvar er fæddur árið 1980 og hóf ungur störf í tískuiðnaðinum. Eftir að hann flutti til London árið 2001 hóf hann störf hjá tískuhönnuðinum Marjan Pejoski sem er frægastur fyrir svanakjól Bjarkar og stofnaði síðan tískufyrirtækið Ostwald Helgason í Bretlandi sem hannaði og framleiddi tískuföt sem seld voru víða um heim. Eftir lokun fatamerkisins stofnaði Ingvar Vitrolabs Inc. árið 2016 sem framleiðir leður úr stofnfrumum dýra á umhverfisvænan hátt sem verður m.a. selt til tísku- og bílaframleiðanda. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
6/28/20231 hour, 43 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

43. Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Sensa

Viðmælandi þáttarins er Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og forstjóri Sensa. Valgerður er fædd árið 1963 og alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Melaskóla og Hagaskóla þangað til leið hennar lá í Menntaskólann í Reykjavík. Hún kláraði síðan BS próf í rafmagnsverkfræðifræði frá Háskóla íslands og MBA frá University of Miami. Valgerður hefur komið víða við og m.a. unnið sem sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, deildarstjóri rafmagnsdeilar hjá Jóhann Ólafsson & Co. og framkvæmdastjóri hjá Tæknivali þangað til hún stofnaði svo Sensa árið 2002. Sensa er 140 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni, m.a. lausnir í innviðum og rekstri upplýsingatæknikerfa. Sensa var keypt af Símanum árið 2007 og tilheyrði Símanum þangað til 2020 þegar norska upplýsingafyrirækið, Crayon, keypti Sensa.  Valgerður hefur setið í hinum ýmsu stjórnum t.d. eins og hjá Íslandsbanka, Símanum í Danmörku, Talenta, Samtökum iðnaðarins og atvinnulífsins, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og hjá sprotafyrirtækinu Memento.  Þessi þáttu er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
6/26/20231 hour, 19 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

42. Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical

Viðmælandi þáttarins er Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical en félagið framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Pétur er fæddur árið 1966 og er alinn upp í Kópavoginum. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lauk prófi frá Kennaraháskólanum og nam síðar mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Pétur hefur komið víða við í atvinnulífinu. Hann var einn af stjórnendum Samskipa við stofunun félagsins 1991, stýrði innflutningsdeild og uppbyggingu á vöruhótel og drefingamiðstöð Samskipa. Hann var síðar framkvæmdastjóri yfir starfsemi í SÍF í Noregi (Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda) og síðar sölustjóri hjá íslenska lækningatækjaframleiðandanum Flögu. Frá Flögu fór Pétur til Fons eignarhaldsfélags og fór þar fyrir fjárfestingum Fons á breskum smásölumarkaði og í flugrekstri.  Pétur tók við sem framkvæmdastjóri Nox Medical árið 2011 fjórum árum eftir stofnun þess og hefur stýrt örum vexti félagsins síðan. Fyrir þremur árum sameinaði Nox Medical starfsemi sína við starfsemi Fusion Health í Atlanta í Bandaríkunum undir merkjum Nox Health. Hjá Nox starfa nú um 350 starfsmenn og þar af tæplega 100 á Íslandi við þróun, framleiðslu og markaðssetningu lækningavara undir merkjum Nox Medical. Vöxtur félagsins hefur verið hraður en árið 2022 velti Nox Health samstæðan rúmum 8 milljörðum króna. 
6/23/20231 hour, 25 minutes, 5 seconds