Winamp Logo
Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ Cover
Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ Profile

Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ

Icelandic, Sports, 1 season, 10 episodes, 7 hours, 30 minutes
About
Ragna Ingólfsdóttir og Kristín Birna Ólafsdóttir-Johnson ræða við íslenskt afreksíþróttafólk og íslenska þjálfara.
Episode Artwork

Verum hraust #6 - Karen Knútsdóttir

Karen Knútsdóttir er landsliðskona í handknattleik og leikstjórnandi með meistaraflokki kvenna í Fram. Hún hefur náð frábærum árangri með liðinu og liðið hefur nokkrum sinnum orðið Íslands- og bikarmeistari. Karen var erlendis í atvinnumennsku um árabil og spilaði með þrem mismunandi liðum; Nice í Frakklandi, SönderjyskE í DK og Blomberg/Lippe í Þýskalandi. Karen hefur verið einn lykilleikmaður íslenska landsliðsins í yfir áratug og spilað með liðinu á þrem stórmótum. Karen eignaðist nýlega barn en stefnir ótrauð á að snúa aftur til keppni fljótlega. Í viðtalinu, sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur, talar Karen um ferilinn, æfingar hérlendis sem og erlendis og ýmislegt annað skemmtilegt.
12/10/202039 minutes, 19 seconds