Kennsluvarpið upplýsir kennara um stefnur og strauma á sviði kennslufræðinnar en er ekki síst ætlað að veita innblástur fyrir mismunandi kennsluaðferðir - bæði nýjar sem gamlar. Markmið kennsluvarpsins er að deila kennslufræðilegri þekkingu við Háskóla Íslands með opnum umræðum við kennara frá ýmsum deildum innan háskólans. Kennsluvarpið er framleitt af Kennslumiðstöð Háskóla Íslands.
Með Aleksöndru Kojic verkefnisstjóra Kennsluakademíu opinberu háskólanna
Aleksandra Kojic verkefnisstjóri Kennsluakademíunnar ræðir um það sem er efst á baugi. Kennsludagar, inntaka nýrra kennara og fleira.
4/22/2024 • 15 minutes, 25 seconds
Guðrún Dröfn Whitehead ræðir um fjarnám í safnafræði
Guðrún Dröfn lektor í safnafræði við HÍ hefur verið að gera fjölmarga spennandi hluti þegar kemur að kennslu. Hér ræðum við meðal annars um safnafræðina sjálfa og hvað það er sem heillaði Guðrúnu við hana. Guðrún hefur meira og meira verið að færa námskeiðin sín yfir í fjarnám og tekist það vel. Hún hefur útbúið fjöldan allan af faglegum kennslumyndböndum sem nýtast vel í kennslunni og kappkostað að skipuleggja námskeiðin á afar nemendamiðaðan hátt.
3/22/2024 • 27 minutes, 59 seconds
Fjarnám með Hólmfríði Árnadóttur
Hólmfríður Árnadóttir deildarstjóri Kennslumiðstöðvar leiðir okkur í allan sannleikann um fjarnám við Háskóla Íslands.
1/22/2024 • 20 minutes, 7 seconds
Áhugahvöt nemenda -með Ástu Bryndísi Schram
Ásta Bryndís Schram er lektor og kennsluþróunarstjóri við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands auk þess sem hún starfar við
kennsluráðgjöf hjá Kennslumiðstöð. Hún ræðir hér um áhugahvöt (e.
motivation), sjálfsmynd (e. identity), samsömun (e. identification), og samspil þessara þátta við kennsluaðferðir. Einnig kynnir hún niðurstöður rannsókna sinna á aðferðum er snerta uppbyggingu
stuðnings við kennsluþróun og starfsþróun kennara.
10/2/2023 • 6 seconds
KENNSLUVARPIÐ
Kennsluvarpið upplýsir kennara um stefnur og strauma á sviði kennslufræðinnar en er ekki síst ætlað að veita innblástur fyrir mismunandi kennsluaðferðir - bæði nýjar sem gamlar.
Markmið kennsluvarpsins er að deila kennslufræðilegri þekkingu við Háskóla Íslands með opnum umræðum við kennara frá ýmsum deildum innan háskólans.
Kennsluvarpið er framleitt af Kennslumiðstöð Háskóla Íslands.