Winamp Logo
Hlaupalíf Hlaðvarp Cover

Hlaupalíf Hlaðvarp

Icelandic, Sports, 1 season, 49 episodes, 2 days, 7 hours, 57 minutes
About
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn Hlaupalíf. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!
Episode Artwork

#49 Sérnámslæknarnir Hilda Hrönn og Arndís Rós um heilsueflandi vinnustaði

Hvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni.
10/20/20241 hour, 13 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

Arnar Péturs um hlaupalífið og Berlínarmaraþonið

Arnar Péturs og Berlínarmaraþonið takk. 3 mín bæting, negatíft splitt og fullkomið hlaup hjá Arnari og fáum því auðvitað ítarlega hlaupasögu frá Arnari í þættinum. Eins og Arnari er vant miðlar hann sömuleiðis úr hlaupa-viskubrunni sínum enda fróðleiksfús með öllu þegar kemur að hlaupum. Þú mátt því ekki missa af þessum þætti. Þátturinn er í boði vaxtalækkunarákvörðun Seðlabanka Íslands.
10/3/20242 hours, 7 minutes, 40 seconds