Í þessum þætti af Gagnarök fjalla Ómar, Arnar og Alicja um nýjasta útspilið frá OpenAI.Alicja Lei er sérfræðingur í skilaboðum og efnisgerð hjá Digido ásamt því að vera einn mesti reynslubolti landsins í B2B sölu- og markaðsmálum. Alicja kemur frá Bandaríkjunum og er þátturinn að þessu sinni á ensku - í fyrsta sinn! Flest þekkjum við ChatGPT og notum jafnvel daglega til að svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Mörg okkar nota einnig DALL-E 2 sem getur breytt texta í myndir. Saman hefur þessi virkni hjálpað markaðsfólki með fjölmarga hluti, svo sem hugmyndavinnu, textasmíði, laga texta, rannsóknarvinnu, búa til myndefni ofl.Nú í febrúar kynnti OpenAi nýjungina - SORA - og er tilgangurinn með þessari nýju virkni að gera notendum kleift að breyta texta í myndband - markaðsfólki til mikillar ánægju. Í þættinum köfum við ofan í:Hvað er Sora?Hvernig er það öðruvísi en ChatGPT og Dall-E 2?Hvernig mun Sora virka?Hvernig verður hægt að nota Sora?Hvað ber framtíðin í skauti sér?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
4/16/2024 • 46 minutes, 51 seconds
Spurningakeppni auglýsingastofa | Úrslit
Spennan í spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst' er í algleymingi.Hér & Nú og Tvist etja kappi í sjálfri úrslitaviðureigninni. Ótrúleg viðureign þar sem spennan er við völd fram að síðustu spurningu. Hlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
3/1/2024 • 27 minutes, 9 seconds
Spurningakeppni auglýsingastofa | Cirkus vs. Kiwi | 8 liða úrslit
Spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst' heldur áfram.Cirkus og Kiwi etja kappi í 8-liða úrslitum þar sem m.a. er spurt út í Ólympíuleikana, YouTube rásir og Rómverska heimsveldið.Hlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
2/27/2024 • 30 minutes, 58 seconds
Spurningakeppni auglýsingastofa | Kontor vs. Hér & Nú | 8 liða úrslit
Spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst' heldur áfram.Kontor og Hér & Nú eigast hér og nú við í 8-liða úrslitum þar sem m.a. er spurt út í vinsældir á Instagram, vinsæl nöfn og fræg mottóHlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
Spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst' heldur áfram.Hvíta Húsið og Tvist eigast við í 8-liða úrslitum þar sem m.a. er spurt út í íslenska áhrifavalda, vinsæla kokteila og internetslangur Hlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
2/25/2024 • 33 minutes, 38 seconds
Spurningakeppni auglýsingastofa | Pipar vs. Aldeilis | 8 liða úrslit
Spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst' heldur áfram.Nú er komið að viðureign Pipar og Aldeilis í 8-liða úrslitum þar sem m.a. er spurt út í klassískar Superbowl auglýsingar, bannaðar auglýsingar og Covid-19. Hlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
2/23/2024 • 24 minutes, 7 seconds
Spurningakeppni auglýsingastofa | Sahara vs. Aldeilis | 16 liða úrslit
Við kynnum til leiks spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst'. Spurningakeppnin er útsláttarkeppni þar sem 16 auglýsingastofur keppast um að vera handhafi verðlaunagripsins Lúðarnir.Nú er komið að viðureign Sahara og Aldeilis í 16-liða úrslitum. Áhersla á laufléttar og skemmtilegar spurningar um allt milli himins og jarðar með stöku auglýsingaspurningum á milli. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
Við kynnum til leiks spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst'. Spurningakeppnin er útsláttarkeppni þar sem 16 auglýsingastofur keppast um að vera handhafi verðlaunagripsins Lúðarnir.Nú er komið að viðureign Hvíta Hússins og Kvartz í 16-liða úrslitum. Áhersla á laufléttar og skemmtilegar spurningar um allt milli himins og jarðar með stöku auglýsingaspurningum á milli. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
2/20/2024 • 30 minutes, 25 seconds
Spurningakeppni auglýsingstofa | Pipar vs. Vorar | 16 liða úrslit
Við kynnum til leiks spurningakeppni auglýsingabransans 'Augljóst'. Spurningakeppnin er útsláttarkeppni þar sem 16 auglýsingastofur keppast um að vera handhafi verðlaunagripsins Lúðarnir. 16-liða úrslitin byrja á viðureign Pipar/TBWA og Vorar. Áhersla á laufléttar og skemmtilegar spurningar um allt milli himins og jarðar með stöku auglýsingaspurningum á milli. Hlustun er sögu ríkari. UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
2/15/2024 • 25 minutes, 34 seconds
Hvernig notum við Video & Vefvörp í B2B | Kristján Einarsson, markaðsstjóri Treble Technologies
Gestur þáttarins er Kristján Einarsson, markaðsstjóri B2B nýsköpunar- og hugbúnaðarfyrirtækisins Treble Technologies.Treble sérhæfir sig í hugbúnaði sem er að breyta því hvernig verkfræðingar og arkitektar beita hljóðhermun. Treble hafa verið að gera það virkilega gott og í dag eru meðal fremstu tæknifyrirtæki heims að nýta lausnir þeirra.Kristján Einarsson er einn reynslumesti markaðsmaður landsins og ekki síst þegar kemur að B2B markaðsmálum, auk þess að vera hörku glímukappi með brúnt belti í brasilísku jiu-jitsu. Kristján hóf sinn feril við markaðsrannsóknir hjá Maskínu ásamt því að dýfa tánni í nýsköpunar umhverfið Íslandi. Kristján tók svo við sem verkefnastjóri markaðsmála hjá Origo og tók stóran þátt í að leiða vinnuna við sameiningu Nýherja, Applicon og TM Software undir vörumerkinu Origo. Hann tók svo við sem markaðsstjóri Treble árið 2021.Við settumst niður og ræddum við Kristján umHver eru góð ráð við endurmörkun (e. rebranding)?Af hverju eru video svona áhrifarík?Hvernig video er hægt að búa til?Hvernig er best að nýta vefvörp (e. Webinars)?Hvernig mælum við árangur?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
1/18/2024 • 2 hours, 39 minutes, 46 seconds
Tæki & tól | Framer vefumsjónarkerfið sem er á allra vörum
Í þessum þætti af Gagnarök fjalla Ómar og Biggi um vefumsjónarkerfið Framer sem virðist vera á allra vörum þessa dagana og er að breyta því hvernig vefsíður eru hannaðar, smíðaðar og uppfærðar.Framer er svo kallað "no-code" vefumsjónarkerfi og var fyrirtækið stofnað árið 2013 og er með höfuðstöðvar í Amsterdam í Hollandi. Einn helsti styrkleiki Framer er hversu auðvelt er að hanna vefsíðu og búa hana til án þess að þurfa forritara til að smíða hana. Framer gefur markaðsfólki, vefstjórum, hönnuðum ofl. sjálfstæði og gerir því auðveldara fyrir að teikna upp draumavefsíðuna sína, framleiða hana á skömmum tíma, uppfæra hana og viðhalda henni.Í þættinum köfum við ofan í:Hvað er vefumsjónarkerfi? Hvernig er hægt að nýta Framer?Hverjir eru kostir og gallar Framer?Hver er munurinn á Framer og Wix, Webflow og Prismic.Hver eru tips & tricks við að nota Framer?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
11/29/2023 • 1 hour, 9 minutes, 19 seconds
B2B Leads ráðstefnan 28 sept - sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi
Í þessum þætti af Gagnarök segja Ómar og Biggi frá B2B Leads ráðstefnunni sem mun fara fram hinn 28 september í hugmyndahúsinu Grósku í Vatnsmýrinni.Ráðstefnan er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er ætluð að hjálpa fyrirtækjum sem starfa á fyrirtækjamarkaði, betur þekktur sem B2B markaðurinn (Business to Business) og íslensku hugviti að vaxa út um allan heim. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun setja ráðstefnunÍslandi kraumar ótrúlega mikið af spennandi fyrirtækjum sem búin er að smíða frábæra vöru en vantar aðstoð við sölu- og markaðsstarf. Markmið ráðstefnunnar er að hjálpa fyrirtækjum, hvort sem þau eru rótgróin eða í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, að ná betri árangri í markaðsstarfi með því að nýta nýjustu aðferðir í stefnumótun, efnisgerð, herferðum og mælingum. Jafnframt verða nýjustu tækin og tólin á markaðnum skoðuð í þaulaTilgangur ráðstefnunnar ekki síður að búa til samfélag fyrir B2B fyrirtæki og veita þeim vettvang til að læra hvort af öðru. Á ráðstefnunni verða erindi flutt frá 20 fyrirlesurum frá alþjóðlegum B2B fyrirtækjum á borð við Hubspot, Cognism, B2Linked og Q Content, sem og leiðandi fyrirtækjum á Íslandi svo sem, Marel, Gangverk, Good Good, 50 skills og mörgum fleirum. Áhersla verður lögð á raundæmi og gagnlegar ráðleggingar sem nýtast fyrirtækjum við dagleg störf. Bergur Ebbi rýnir í kristalskúluna og spáir fyrir um framtíð markaðs- og sölumála. Í þættinum köfum við ofan í:Til hvers er ráðstefnan?Fyrir hverja er hún?Hver er dagskráin?Hverjir eru fyrirlesarar?Hvað mun fólk læra á ráðstefnunni?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
9/13/2023 • 1 hour, 3 minutes, 27 seconds
Listin við að búa til auglýsingar & kvikmyndir | Rúnar Ingi Einarsson, stofnandi, kvikmynda- & auglýsingaleikstjóri og framleiðandi hjá Norður
Gestur þáttarins er kvikmynda- og auglýsingaleikstjórinn og framleiðandinn Rúnar Ingi Einarsson sem hlotið hefur verðskuldaða athygli fyrir þátttöku sína í stuttmyndinni Fár sem hlaut nýlega sérstaka viðurkenningu á kvikmyndahátíðinni í Cannes.Rúnar Ingi hefur lengi verið talinn meðal þeirra allra bestu í bransanum og á mörg spennandi verkefni undir beltinu svo sem leikstjórn á auglýsingum fyrir alþjóðlegu fyrirtækin Volvo, Land Rover, Samsung, O2 og Nike svo dæmi séu nefnd. Hann leikstýrði jafnframt stiklu fyrir sjónvarpsþættina Game of Thrones og hefur ferðast um allar heim fyrir verkefni.Rúnar Ingi er menntaður með BA í lögfræði en fann snemma að áhuginn og ástríðan lá í kvikmynda- og auglýsingagerð. Hann byrjaði sinn feril sem ungur Steven Spielberg sem fékki vini sína í hverfinu til að leika í stuttmyndum. Síðan þá hefur hann komið víða við og unnið sem leikstjóri hjá framleiðslufyrirtækjum eins og New Land í Svíþjóð, Markenfilm í Þýskalandi, Caviar í Bandaríkjunum og Pegasus á Íslandi áður en hann stofnaði sjálfur framleiðslufyrirtækið Norður, þar sem hann stýrir skipinu í dag.Við settumst niður með Rúnari og ræddum:Hvað er svona spennandi við auglýsinga- og kvikmyndagerð?Hvert er ferlið við að búa til góða auglýsingu?Hvað einkennir góða auglýsingu?Hverjar eru bestu auglýsingar allra tíma?Hver eru góð ráð fyrir unga og upprennandi leikstjóra?Hvernig var að nudda olnbogum saman með stjörnurnar á Cannes?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
8/31/2023 • 2 hours, 4 minutes, 37 seconds
Verður Ísland leiðtogi í stafrænni þjónustu? | Andri, stafrænn leiðtogi og Vigdís, markaðsstjóri hjá Stafrænt Ísland
Gestir þáttarins koma frá Stafrænt Ísland. Þau eru Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi og Vigdís Jóhannsdóttir, markaðsstjóri.Stafrænt Ísland er sameiginlegt verkefni opinbera stofnana á Íslandi til að bæta stafræna þjónustu og gera líf okkar allra betra.Andri Heiðar stundaði MBA nám í Stanford háskóla í Kaliforníu með áherslu á frumkvöðlafræði, tækni og leiðtogafærni. Hann hefur komið víða við á sviði nýsköpunar og er einn af stofnendum Icelandic Startups og nýsköpunarkeppninnar Gulleggið, hann starfaði um árabil sem þróunarstjóri hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu LinkedIn. Hann stofnaði og rok sprotafyrirtækið Travelade áður en hann gerðist stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hjá verkefninu Stafrænt Ísland árið 2020.Vigdís er viðskiptafræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af markaðs- kynningarmálum. Hún hóf feril sinn hjá Íslenska útvarpsfélagsinu (sem síðar varð 365) þar sem hún starfaði fyrst sem verkefnastjóri á markaðsdeild sjónvarps, í þáttagerð á framleiðsludeild og kynningarstjóri útvarpssviðs. Árið 2009 lá leiðin á auglýsingastofuna Pipar þar sem hún starfaði sem ráðgjafi og aðstoðarframkvæmdastjóri. Árið 2020 gerist hún markaðsstjóri Stafræns Íslands þar sem hún leiðir innri og ytri markaðs- og kynningarmál, samskipti og fræðslu.Við ræddum við Andra og Vigdísi umHvað er Stafrænt Ísland og Ísland.is?Hvaða vandamál eru þau að leysa? Hvaða tækifæri eru til staðar?Hvernig markaðssetur Stafrænt Ísland sig fyrir almenningi?Hvernig mæla þau árangur?Verður Ísland leiðtogi í stafrænni þjónustu?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
8/23/2023 • 1 hour, 56 minutes, 4 seconds
Flatur teymisstrúktur, Agile & markaðsmál hjá Gangverk | Ása rekstrarstjóri og Kristján Director Client of Relations
Gestir þáttarins eru Ása Rún Björnsdóttir, rekstrarstjóri og Kristján Aðalsteinsson, Director of Client Relations hjá stafrænu vöruhönnunar stofunni Gangverk. Þátturinn fjallar ítarlega um kúlturinn, teymisstrúkturinn og aðferðafræðina sem Gangverk beitir til að búa til jákvætt, skilvirkt og afkastamikið umhverfi þar sem starfsmenn fá að gera það sem þau gera best.Gangverk er íslenskt fyrirtæki sem ef til vill margir hafa ekki heyrt um en hefur verið að gera virkilega góða hluti við ráðgjöf og innleiðingu á stafrænni umbreytingu fyrir fyrirtæki um allan heim. Fyrirtækið hlaut nýverið útflutningsverðlaun forseta Íslands.Ása sem heldur utan um daglegan rekstur hjá Gangverk starfaði áður hjá Símanum sem forstöðumaður Greiningardeildar, Hagdeildar og Vörustýringar.Kristján, sem starfar sem brú á milli viðskiptavina og teyma innan Gangverks, hóf sinn feril sem handboltaþjálfari og starfaði svo í ráðgjöf hjá N1 og viðskiptastjóri og hluthafi hjá auglýsingastofunni Hvíta Húsinu.Þau gengu bæði til liðs við Gangverk árið 2022.Við ræddum við Ásu og Kristján umHvað er stafræn umbreyting?Hvernig flatur teymis strúktúr virkarMikilvægi þess að hafa fjölbreytni í teymumHvernig Gangverk hefur náð árangriHvað er framundan hjá GangverkUM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
7/18/2023 • 1 hour, 59 minutes, 31 seconds
Vörumerki, branding og neyslusálfræði | Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Öskju
Gestur þáttarins er Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri bílaumboðsins Öskju. Þátturinn er smekkfullur af skemmtilegum umræðum þar sem Ómar og Helga, samfélagsmiðla sérfræðingur hjá Digido, ræða við Sigríði um þá töfra sem fylgja góðu branding.Við ræðum vörumerki eins og Coca Cola, Pepsi, apple, snyrtivörurisa, Benz, Húsasmiðjuna, Krónuna, Blush, Indó og fleira. Og svo koma raðmorðingjar einhversstaðar fyrir þarna líka.Sigríður er með yfir 10 ára reynslu af markaðsmálum og hefur lengi haft mikinn áhuga á vörumerkjum og branding. Að eigin sögn stafar áhuginn af forvitni hennar á mannlegri hegðun. Hún byrjaði sinn feril í markaðsgreiningu hjá Birtingahúsinu áður en bauðst tækifæri til að fara til Cintamani sem markaðsstjóri. Sigríður skipti svo yfir til Ölgerðarinnar þar sem ég starfaði sem vörumerkjastjóri Pepsi ásamt því að taka virkan þátt í vöruþróun félagsins. Fyrir rétt rúmu ári tók hún svo stökkið yfir til Öskju árið 2022 þar sem hún starfar sem markaðsstjóri í dag og stýrir vörumerkjum Kia, Honda og Mercedes-Benz.Í þættinum köfum við ofan í:Af hverju skipta vörumerki máli?Hvað einkennir gott vörumerki og hvernig verður það til?Hvaða vörumerki í dag eru að gera það sérstaklega gott?Hvernig mælum við árangur af vörumerkjum?UM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing
6/13/2023 • 1 hour, 9 minutes, 5 seconds
B2B markaðsmál eru vísindi & list | Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri Men&Mice
Gestur þáttarins er Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri B2B hugbúnaðarfyrirtækisins Men & Mice og er óhætt að segja að þátturinn er hlaðinn gagnlegum ráðleggingum fyrir alla sem vinna í B2B geiranum (sala og markaðsetning fyrirtækis til fyrirtækis).Elvar byrjaði sinn markaðsferil sem ráðgjafi hjá Pipar/TBWA en færði sig yfir til Men&Mice þar sem hann byrjaði sem stafrænn markaðsstjóri áður en hann var gerður að markaðsstjóra á síðasta ári. Men&Mice sérhæfir sig í net innviða hugbúnaðarlausnum fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki svo sem Microsoft, FedEx, Nestle og Harvard Business School. Stærstur hluti af tekjum fyrirtækisins koma frá Bandaríkjunum en fyrirtækið hefur verið að vaxa hratt í Evrópu og öðrum heimshlutum.Í þættinum köfum við ofan í:Alþjóðlega markaðsstrategíu Men&MiceB2B kauphegðun og kaupferliHerferðir á Linkedin, Facebook, Google, Webinars ofl.Tilraunir með RedditMikilvægustu mælikvarðana t.d. leads, MQL, SQL, conversion ratioUM HLAÐVARPIÐGagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketinghttps://www.instagram.com/digidomarketinghttps://www.facebook.com/digidomarketing